fbpx
Mánudagur 29.apríl 2024

Davíð les Fréttablaðið

Ritstjórn DV
Laugardaginn 2. febrúar 2019 05:00

Davíð Oddsson telur aðgerðir ríkisstjórnarinnar gegn verðbólgu vera gagnslaust hálfkák.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það hefur lengi verið rígur milli Morgunblaðsins og Fréttablaðsins, þá sérstaklega eftir að Fréttablaðið náði stóru forskoti fyrir rúmum áratug. Davíð Oddsson, ritstjóri Morgunblaðsins, og lærisveinar hans hafa lengi sakað Fréttablaðið um að troða sér óumbeðið inn á heimili landsmanna, það geri það verkum að lestrartölurnar séu svona háar. Davíð notaði tækifærið þegar hann var sjötugur fyrir ári síðan til að hæðast að Fréttablaðinu og sagði:

„Ég vil biðja ykkur öll að skála og núna fyrir gestgjafanum, Árvakri. Sem hefur stýrt þessu myndarlega blaði núna í 105 ár bráðum og er ekkert blað annað sem svo lengi hefur lifað. Reyndar er ekkert annað blað í landinu, satt best að segja. Ekki sem hægt er að lesa. Það er til blað sem vitað er að einhverjir fletti en ég hef ekki enn hitt neinn sem les það,“ sagði Davíð í lok ræðu sinnar í húsnæði Morgunblaðsins og lyfti glasi sínu.

Þessi ummæli vekja óneitanlega athygli í ljósi Staksteina Morgunblaðsins á föstudaginn, en Davíð er oftar en ekki talinn vera höfundur þeirra. Ekki nóg með að það sé vitnað í Fréttablaðið heldur er beinlínis gert ráð fyrir því að lesendur Morgunblaðsins lesi Fréttablaðið. Þetta teljast óneitanlega tíðindi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 3 klukkutímum

Ljóst að Sanchez söðlar um í sumar

Ljóst að Sanchez söðlar um í sumar
Fókus
Fyrir 3 klukkutímum

Elizabeth Hurley afhjúpar leyndarmálið að unglegu útliti

Elizabeth Hurley afhjúpar leyndarmálið að unglegu útliti
Fréttir
Fyrir 4 klukkutímum

Lögreglan sögð brjóta reglur um einkennismerki – Merki sérsveitarinnar eigi sér enga stoð

Lögreglan sögð brjóta reglur um einkennismerki – Merki sérsveitarinnar eigi sér enga stoð
Fókus
Fyrir 4 klukkutímum

Velta fyrir sér tekjum Gústa B eftir að hann pungaði út milljónum í sumargjöf

Velta fyrir sér tekjum Gústa B eftir að hann pungaði út milljónum í sumargjöf
Fókus
Fyrir 6 klukkutímum

Aðdáendur hafa áhyggjur af Justin Bieber – Birti myndir af sér grátandi

Aðdáendur hafa áhyggjur af Justin Bieber – Birti myndir af sér grátandi
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Opinbera hvers vegna Salah og Klopp rifust um helgina

Opinbera hvers vegna Salah og Klopp rifust um helgina
Fréttir
Fyrir 7 klukkutímum

Jón Steinar studdi Arnar Þór en er búinn að skipta um skoðun

Jón Steinar studdi Arnar Þór en er búinn að skipta um skoðun
Fréttir
Fyrir 7 klukkutímum

Að öllu óbreyttu verður þetta endanlegur fjöldi forsetaframbjóðenda

Að öllu óbreyttu verður þetta endanlegur fjöldi forsetaframbjóðenda