Þetta hljóta að vera orðin sem eru brennd á varir fjölmargra Íslendinga eftir að sunddrottningin Hrafnhildur Lúthersdóttir varð önnur í vali á íþróttamanni ársins. Gylfi Þór Sigurðsson, landsliðsmaður í knattspyrnu varð hlutskarpastur að þessu sinni en hann stóð sig frábærlega í sumar á lokakeppni EM í Frakklandi þegar Ísland komst alla leið í 8 liða úrslit keppninnar.
Ekki eru þó allir á eitt sáttir með valið en úrslitin voru tilkynnt við hátíðlega athöfn í gær. Í þeim hópi er meðal annars hinn reyndi íþróttafréttamaður Sigmundur Ó. Steinarsson sem fjallar um kjörið á Facebook-síðu sinni. Gylfi fékk 430 stig en Hrafnhildur 390. Árangur Hrafnhildar er einn sá besti í gjörvallri sundsögu Íslands.
„Það er mér hulin ráðgáta hvernig hægt var að ganga fram hjá Hrafnhildi, sem stóð sig með glæsibrag á þremur stórmótum á árinu, þar sem hún keppti við bestu sundmenn heims – Evrópukeppninni í 50 m laug í London, Ólympíuleikunum í Ríó og heimsmeistaramótinu í 25 m laug í Windsor í Kanada.“
Sigmundur bendir á að Hrafnhildur hafi sett átta Íslandsmet á mótunum og keppt þrisvar til úrslita á EM og tryggt sér verðlaun í öllum sundum, tvö silfur og eitt brons.
„Hún synti til úrslita í 100 m bringusundi á ÓL í Ríó og varð sjötta. Hrafnhildur er í 10. sæti á heimslistanum í 200 metra bringusundi í 50 m laug og 11. sæti í 100 metra bringusundi.“
Þá segir Sigmundur sárt að horfa upp á að gengið hafi verið fram hjá glæsilegum fulltrúa sem fái ekki njóta til fulls framgöngu sinnar á árinu. Hún hafi glatt Íslendinga með stórkostlegum árangri og skemmtilegri framkomu. „Takk fyrir glæsilegt ár Hrafnhildur!“ segir Sigmundur að lokum.