Lögreglan handtók mann sem tengdist ekki árásinni
Enginn er í haldi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu vegna rannsóknar á hnífstunguárás í húsakynnum Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins við Digranesveg í Kópavogi.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sleppti manni á fertugsaldri úr haldi í gær, nokkrum klukkutímum eftir að hann var handtekinn grunaður um árásina sem átti sér stað á tíunda tímanum. Maðurinn var handtekinn í Hafnarfirði en sleppt að athugun lokinni. Áverkar konunnar, sem er starfsmaður á Greiningarstöðinni, sem varð fyrir árásinni voru ekki miklir en hnífsblaðið kom niður í handlegg hennar. Mikill viðbúnaður var við Digranesveg í gærmorgun þegar tilkynning barst um árásina og var sérsveit lögreglu kölluð út ásamt fjölda lögreglumanna. Greiningarstöðinni er ætlað að efla lífsgæði og bæta framtíð fatlaðra barna og unglinga og fjölskyldna þeirra.