fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Eyjan

Vigdísarholt mun annast rekstur hjúkrunarheimilisins á Seltjarnarnesi

Ritstjórn Eyjunnar
Fimmtudaginn 10. janúar 2019 17:03

Frá undirritun viljayfirlýsingarinnar í heilbrigðisráðuneytinu í dag

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Vigdísarholt ehf. mun annast rekstur nýja hjúkrunarheimilisins á Seltjarnarnesi, samkvæmt viljayfirlýsingu heilbrigðisráðherra og Vigdísarholts ehf. sem undirrituð var í dag. Félagið mun einnig taka að sér rekstur dagdvalarrýma í bæjarfélaginu og er stefnt að umtalsverðri fjölgun þeirra.

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra segir fagnaðarefni að með þessu hafi verið eytt þeirri óvissu um rekstur heimilisins sem skapaðist þegar ljóst varð að Seltjarnarnesbær myndi ekki axla samningsbundna ábyrgð sína á rekstri þess:

„Ég hef lagt alla áherslu á að tryggja opnun heimilisins um leið og það er tilbúið til reksturs, því hver dagur er dýrmætur í þessum efnum. Tafarlaus opnun þessa hjúkrunarheimilis er eitt af því sem sérstaklega er nefnt í hlutaúttekt Embættis landlæknis til að bregðast við alvarlegri stöðu á bráðamóttöku Landspítalans.“

Fyrir liggur að Seltjarnarnesbær mun afhenda hjúkrunarheimilið fullfrágengið og fullinnréttað til rekstrar, líkt og kveðið er á um í samningi, fyrir næstu mánaðamót. Samkvæmt viljayfirlýsingunni tryggir heilbrigðisráðuneytið greiðslur fyrir rekstri 40 hjúkrunarrýma af hálfu Sjúkratrygginga Íslands frá 1. febrúar næstkomandi. Gert er ráð fyrir að það geti tekið allt að þrjá mánuði að koma heimilinu í fullan rekstur þannig að öll hjúkrunarrýmin verði fullnýtt: „Við munum leggja allt kapp á að taka heimilið í notkun eins fljótt og kostur er, manna stöður og ljúka öðrum undirbúningi“ segir Steingrímur Ari Arason, formaður stjórnar Vigdísarholts en hann gerir ráð fyrir að hægt verði að taka við fyrstu heimilismönnunum í byrjun apríl.

Vigdísarholt sem tekur að sér rekstur hjúkrunarheimilisins á Seltjarnarnesi, er einkahlutafélag í eigu ríkisins. Félagið rekur einnig hjúkrunarheimilið Sunnuhlíð í Kópavogi undir stjórn Kristjáns Sigurðssonar sem er framkvæmdastjóri Vigdísarholts og mun einnig stýra rekstri heimilisins á Seltjarnarnesi. Horft er til samlegðaráhrifa í þessu sambandi með góða þjónustu og samnýtingu að leiðarljósi.

Dagdvalarrýmum verði fjölgað að ári úr 9 í 25

Vigdísarholt mun einnig taka að sér rekstur níu dagdvalarrýma sem Seltjarnarnesbær hefur rekið við Skólabraut. Þann 1. júlí næstkomandi verður sú þjónusta færð inn í húsnæði nýja hjúkrunarheimilisins. Stefnt er að því að fjölga dagdvalarrýmunum verulega, eða úr níu í 25 frá 1. janúar 2020, líkt og fram kemur í viljayfirlýsingunni sem undirrituð var í dag.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 5 dögum

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Björn Jón skrifar: Ótrúlegur árangur íslenskra tæknifyrirtækja

Björn Jón skrifar: Ótrúlegur árangur íslenskra tæknifyrirtækja
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Flokkurinn sem yfirgaf sjálfan sig

Sigmundur Ernir skrifar: Flokkurinn sem yfirgaf sjálfan sig
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ólafur Þ. Harðarson: Sjálfstæðismenn aðeins einu sinni fengið sinn forseta – sá var fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins

Ólafur Þ. Harðarson: Sjálfstæðismenn aðeins einu sinni fengið sinn forseta – sá var fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins
Eyjan
Fyrir 1 viku

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Lindarhvoll: Leyndarhyggjan enn við lýði – svör berast seint, illa eða ekki

Lindarhvoll: Leyndarhyggjan enn við lýði – svör berast seint, illa eða ekki