fbpx
Föstudagur 09.maí 2025
Kynning

Aukin þægindi fyrir sjálfstætt starfandi einstaklinga

Kynning
Tómas Valgeirsson
Laugardaginn 2. febrúar 2019 11:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ef þú ert sjálfstætt starfandi einstaklingur hefur þú örugglega velt fyrir þér hlutum á borð við reikningagerð, virðisaukaskatt, launatengd gjöld og skil á opinberum gjöldum.

Hjá mörgum getur það verið yfirþyrmandi og tímafrekt verkefni að þurfa að passa upp á þessa þætti í hverjum einasta mánuði. Hjá þjónustunni Payday er hægt að leysa vandamálið með einföldu en öflugu kerfi sem er sérsniðið að þörfum sjálfstætt starfandi einstaklinga. Þjónustan sér sjálfkrafa um skil á launatengdum gjöldum.

Payday er hvort tveggja í senn, hugbúnaður og þjónusta. Um er að ræða lausn fyrir fyrirtæki og einstaklinga sem selja út vinnu sína og/eða þjónustu og gerir notendum kleift að halda utan um allt sem viðkemur launagreiðslum og reikningum á einum stað.

Payday gefur út reikninga, stofnar þá í heimabanka greiðanda, sér til þess að allar lögbundnar greiðslur séu inntar af hendi til þar til bærra aðila og auðveldar notendum að halda utan um og hafa yfirsýn yfir stöðu rekstrarins hverju sinni. Mikið er lagt upp úr því að hugbúnaðurinn sé notendavænn og sem einfaldastur í meðförum.

Það tekur aðeins örfáar mínútur að stofna aðgang að Payday, að því loknu getur þú byrjað að senda reikninga eða greiða þér út laun. Það er ekki jafn flókið að halda utan um reksturinn og þú hefur haldið til þessa, Payday sér til þess.

Payday veitir þér þá yfirsýn yfir reksturinn sem þig hefur alltaf dreymt um. Með auðveldum hætti sérðu hvað þú átt útistandandi í ógreiddum reikningum, hverjar tekjurnar eru í hverjum mánuði, hvað þú greiðir í skatt og hvað er til ráðstöfunar. Með þessu móti ættir þú að verða öruggari með reksturinn og þá um leið verða ákvarðanir tengdar rekstrinum auðveldari.

Þú þarft ekki lengur að muna hvenær það eru skil á staðgreiðslu eða lífeyrissjóðsgreiðslum, Payday passar upp á það fyrir þig. Payday passar upp á að allt sé í skilum á réttum tíma og kemur þannig í veg fyrir óþarfa kostnað og áhyggjur. Framtíðarsýn Payday er sú að bókhald verði sjálfvirkara með hjálp gervigreindar. Þannig verður hægt að lesa sjálfvirkt inn reikninga og kvittanir sem bókaðar eru sjálfkrafa inn í kerfið og stemmdar af með beintengingum við bankareikninga fyrirtækja.

Payday hefur unnið Nordic Startup Awards 2018 á Íslandi sem besta FinTech Startup. Þess má einnig geta að þjónustan náði mikilvægum áfanga við síðustu uppfærslu í desember. Núna er fyrirtækjum með fleiri en einn starfsmann boðið upp á stóru áskriftarleiðina okkar (sem nefnist Allur pakkinn). Þessi breyting opnar á alveg nýjan markhóp sem eru örfyrirtæki og lítil fyrirtæki.

Nánari upplýsingar á payday.is

Kringlunni 1, 103 Reykjavík

Sími: 551-5121

Netpóstur: hjalp@payday.is

Lokað er fyrir athugasemdir
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
06.06.2024

Frumsýna nýjan Škoda Kodiaq á laugardaginn

Frumsýna nýjan Škoda Kodiaq á laugardaginn
Kynning
06.06.2024

Frumsýning – Nýr Škoda Kodiaq

Frumsýning – Nýr Škoda Kodiaq
Kynning
27.03.2024

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 
Kynning
27.03.2024

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“
Kynning
26.01.2024

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7
Kynning
23.01.2024

Tífalt meira magn af „bótoxi jurtaríkisins“ í nýju serumi frá Nivea

Tífalt meira magn af „bótoxi jurtaríkisins“ í nýju serumi frá Nivea