fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Eyjan

Bolli Héðinsson: „Gamli Range Roverinn minn er orðinn þriggja ára og auðvitað mun útgerðin sjá mér fyrir nýjum bíl“

Ritstjórn Eyjunnar
Miðvikudaginn 9. janúar 2019 09:04

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bolli Héðinsson, hagfræðingur, er með kaldhæðna og hvassa gagnrýni á veiðigjöldin í Fréttablaðinu í dag. Hann setur veiðigjaldaumræðuna í samhengi með því að setja upp litla dæmisögu um hvernig þau horfi við  „kunningja“ hans, sem er útgerðarmaður.

Svo virðist sem að kunninginn hafi litlar áhyggjur af veiðigjöldunum meðan að núverandi ríkisstjórn er við völd:

„Ég hitti fyrir skemmstu kunningja minn, útgerðarmann, og spurði hann hvernig útgerðin gengi. „Aldrei betur,“ svaraði hann „ég sé ekki fram á að þurfa að greiða eina einustu krónu í veiðigjöld.“ Ég hváði en hann skýrði þetta út fyrir mér mér. „Þetta verður einfalt. Gamli Range Roverinn minn er orðinn þriggja ára og auðvitað mun útgerðin sjá mér fyrir nýjum bíl. Þeir fást á 14 milljónir en það er ekki eðlilegt að útgerðarmaður þurfi að sætta sig við ódýrustu gerð. Svo er alltaf eitthvað sem ég get tínt til í kostnað, utanlandsferðir og viðhald á húsinu og sumarhúsinu svo þegar upp er staðið þá verður ekkert eftir til að borga í veiðigjöld. Vinstri grænir voru svo assgoti herskáir fyrir síðustu kosningar og við vorum aðeins smeykir, en það var ekkert að marka, þú manst strax í vor vildu þeir allt fyrir okkur gera. En þá kom eitthvað hagfræðingastóð úr háskólanum sem skaut þeim skelk í bringu en það var síst verra að bíða.“

Bolli nefnir að útgerðin eigi alltaf eitt spil uppi í erminni þegar í harðbakkann slær:

„Ef þetta hefði orðið eitthvað vandamál með veiðigjöldin þá eigum við alltaf tromp uppi í erminni og „látum út landsbyggðarspilið“ eins og við útgerðarmenn köllum það. Þá finnum við einhvern útgerðarmann sem er með allt niður um sig og segjum „hvað, ætlið þið að leggja af plássið?“ Og það er segin saga að enginn framsóknarflokkanna stenst svoleiðis og skipta þá engu öll hin plássin sem við höfum lagt í eyði þegar við höfum selt hver öðrum kvótann, það skiptir framsóknarflokkana engu.“ „En hvað segja endurskoðendurnir, ert þú ekki með eitt af þessum fyrirtækjum með fínu útlendu nöfnin sem endurskoðar fyrir þig?“ spurði ég. „Jú blessaður, þeir segja ekki múkk og telja þetta allt saman útgerðarkostnað. Þú manst hvað þeir voru þægir við bankana fyrir hrun. Þeir sögðu að allt væri í himnalagi í bönkunum alveg fram á síðasta dag. Þeir eru ekkert að spá í þetta og gera bara eins og ég segi.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 5 dögum

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Björn Jón skrifar: Ótrúlegur árangur íslenskra tæknifyrirtækja

Björn Jón skrifar: Ótrúlegur árangur íslenskra tæknifyrirtækja
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Flokkurinn sem yfirgaf sjálfan sig

Sigmundur Ernir skrifar: Flokkurinn sem yfirgaf sjálfan sig
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ólafur Þ. Harðarson: Sjálfstæðismenn aðeins einu sinni fengið sinn forseta – sá var fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins

Ólafur Þ. Harðarson: Sjálfstæðismenn aðeins einu sinni fengið sinn forseta – sá var fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins
Eyjan
Fyrir 1 viku

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Lindarhvoll: Leyndarhyggjan enn við lýði – svör berast seint, illa eða ekki

Lindarhvoll: Leyndarhyggjan enn við lýði – svör berast seint, illa eða ekki