fbpx
Laugardagur 05.júlí 2025
Eyjan

Ragnar Þór útskýrir brandarann fyrir Samtökum verslunar og þjónustu: „Georg Bjarnfreðarson er ekki alvöru persóna“

Ritstjórn Eyjunnar
Mánudaginn 17. desember 2018 15:18

Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Og nú erum við hjá VR í þeirri sérstöku stöðu að þurfa að útskýra fyrir Samtökum Verslunar og Þjónustu að Georg Bjarnfreðarson er ekki alvöru persóna heldur karakter sem skapaður er af Jóni Gnarr,“ segir Ragnar Þór INgólfsson, formaður VR, í yfirlýsingu sem hann birti á Facebook í dag.

Yfirlýsingin er svar við gagnrýni Margrétar Sanders og Andrésar Magnússonar hjá Samtökum verslunar og þjónustu, sem þau settu fram gegn auglýsingum VR þar sem Jón Gnarr bregður sér í gervi Georgs Bjarnfreðarsonar. Auglýsingarnar hafa mælst vel fyrir, en þau Margrét og Andrés höfðu áhyggjur af því að auglýsingarnar gæfa ekki rétta mynd af raunveruleikanum.

Sjá nánarAndrés og Margrét segja herferð VR „alvarlega árás“

Ragnar Þór segir:

„Við gerð auglýsinga er þeirri tækni oft beitt, þegar koma þarf á framfæri þungum boðskap, að stilla honum upp í léttar umbúðir. Dæmi um slíkt eru daglegar skopmyndir dagblaða þar sem dregin er upp skrípamynd af oft alvarlegum atburðum. Og nú erum við hjá VR í þeirri sérstöku stöðu að þurfa að útskýra fyrir Samtökum Verslunar og Þjónustu að Georg Bjarnfreðarson er ekki alvöru persóna heldur karakter sem skapaður er af Jóni Gnarr. Nokkuð sem við héldum að hvert mannsbarn á Íslandi þekkti til. Einnig er verslunin Georgskjör ekki til í raunveruleikanum né vörulína sem kennd er við Bjarnfreði sem sagt er að þar sé á boðstólnum,“

segir Ragnar Þór, en greina má dass af kaldhæðni í yfirlýsingunni:

„Tekið skal sérstaklega fram að framkoma Georgs Bjarnfreðarsonar í Næturvaktinni endurspeglar á engan hátt þann raunveruleika sem starfsfólk bensínstöðva býr við né skilning VR á aðbúnaði starfsfólks almennt, heldur ekki því viðhorfi að starfsmenn geti á einhverjum tímapunkti ráðið yfirmönnum sínum bana eins og raunin varð í Dagvaktinni sem ég aftur ítreka að er uppspuni og leikið sjónvarpsefni.“

Þá útskýrir Ragnar hvert markmið auglýsinganna er, hafi það farið framhjá einhverjum:

„Í auglýsingum okkar um Georgskjör er dregin upp ýkt mynd af þeim málefnum sem brenna á okkar félagsmönnum og sem brýnt er að vinnuveitendur hafi í lagi. Auglýsingunum er einnig ætlað að vekja athygli á þeim réttindum sem náðst hafa fram vegna baráttu verkalýðshreyfingarinnar.

Við hjá VR höfum fjölda dæma um yfirgengilega og ólöglega framkomu vinnuveitenda gagnvart okkar félagsmönnum og því er undirtónn auglýsinganna ekki úr lausu lofti gripinn, en auðvitað er efninu pakkað inn sem skopi og vonum við sannarlega að meðal félagsmanna SVÞ leynist enginn Georg Bjarnfreðarson.“

Þá sendir Ragnar Samtökum verslunar og þjónustu létta pillu í lokin:

„Einnig eru áhyggjur SVÞ í mótsögn við þeirra eigin áherslur sem er að lengja dagvinnutímabil verslunarfólks þannig að dagvinna gildi frá kl.6 til kl.19 og að dagvinna nái yfir á laugardaga.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Julian McMahon látinn

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Bryndís sagði málþóf séríslenskt fyrirbæri og taldi rétt að beita 71. grein – Undirbýr nú 32. ræðu sína um veiðigjaldið

Bryndís sagði málþóf séríslenskt fyrirbæri og taldi rétt að beita 71. grein – Undirbýr nú 32. ræðu sína um veiðigjaldið
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Sara tekst á við nýtt verkefni -„Það er óhætt að segja að ég sé glöð og hissa“ 

Sara tekst á við nýtt verkefni -„Það er óhætt að segja að ég sé glöð og hissa“ 
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ný vonarstjarna Demókrata gæti komist í mikilvægt embætti – Trumpistar kalla hann „hryðjuverkamann“

Ný vonarstjarna Demókrata gæti komist í mikilvægt embætti – Trumpistar kalla hann „hryðjuverkamann“
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Veiðigjaldafrumvarpið: Harðlínumennirnir hafa undirtökin innan SFS – málflutningurinn heldur ekki vatni

Veiðigjaldafrumvarpið: Harðlínumennirnir hafa undirtökin innan SFS – málflutningurinn heldur ekki vatni
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Nína Richter skrifar: Uppáhalds afsökunin okkar

Nína Richter skrifar: Uppáhalds afsökunin okkar
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Svarthöfði skrifar: Falsfréttir og væl virka ekki – málatilbúnaði Sjálfstæðisflokksins hafnað í nýrri könnun

Svarthöfði skrifar: Falsfréttir og væl virka ekki – málatilbúnaði Sjálfstæðisflokksins hafnað í nýrri könnun