Arsenal er komið áfram í 32-liða úrslit Evrópudeildarinnar en liðið mætti Qarabag í lokaumferðinni í kvöld.
Arsenal var komið áfram fyrir umferð kvöldsins en vann samt sem áður 1-0 sigur og fer upp úr riðlinum ásamt Sporting Lisbon.
Það var dramatík í Grikklandi þar sem AC Milan heimsótti Olympiakos. AC Milan vann fyrri leik liðanna 3-1 á Ítalíu.
Leik kvöldsins lauk með 3-1 sigri Olympiakos sem fer áfram á markatölu. Það var vítaspyrna undir lokin sem tryggði Olympiakos áfram en öll mörkin komu í síðari hálfleik.
Celtic slapp þá einnig áfram þrátt fyrir 2-1 tap gegn Salzburg. RB Leipzig tókst ekki að vinna Rosenborg á sama tíma og fara Celtic og Salzburg því áfram.
Matthías Vilhjálmsson fékk að byrja hjá Rosenborg sem var að ná í sitt fyrsta stig í riðlakeppninni eftir hörmulegt gengi.
Arsenal 1-0 Qarabag
1-0 Alexandre Lacazette(17′)
Olympiakos 3-1 AC Milan
1-0 Pape Cisse(60′)
2-0 Christian Zapata(sjálfsmark, 70′)
2-1 Christian Zapata(72′)
3-1 Konstantinos Fortounis(víti, 81′)
Celtic 1-2 Salzburg
0-1 Munas Dabbur(67′)
0-2 Fredrik Gulbrandsen(78′)
1-2 Oliver Ntcham(95′)
RB Leipzig 1-1 Rosenborg
1-0 Matheus Cunha(47′)
1-1 Tore Reginiussen(86′)