AIK hefur staðfest að Haukur Heiðar Hauksson muni yfirgefa félagið þegar samningur hans er á enda. AIK verður sænskur meistari með sigri um helgina.
Samningurinn er á enda í lok árs en Haukur hefur spilað með félaginu frá árinu 2015.
Hann kom til AIK frá KR en hefur verið talsvert á bekknum og íhugar nú að koma heim.
Haukur er sterklega orðaður við KA en það er uppeldisfélag hans, samkvæmt heimildum 433.is hefur KA gert honum tilboð sem er ansi rausnarlegt.
Það heillar því Hauk að snúa í heimahagana með konu sína og barn.