fbpx
Fimmtudagur 08.maí 2025
Fréttir

Stjórnarmenn Glitnis vilja fá 73 þúsund á tímann

Ari Brynjólfsson
Fimmtudaginn 4. janúar 2018 10:04

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stjórn Glitis HoldCo, sem sér um að selja eignir slitabús Glitnis fyrir erlenda vogunarsjóði, býðst til að halda áfram störfum ef stjórnarmeðlimir fá rúmlega 73 þúsund krónur á tímann. Glitnir HoldCo var stofnað eftir að slitabú Glitnis borgaði ríkinu stöðugleikaframlag árið 2015 og hefur það hlutverk að breyta eigum félagsins, sem eru metnar á rúmlega 1,8 milljónir evra, í reiðufé og greiða það út til hluthafa. Hluthafarnir eru flestir erlendir vogunarsjóðir. Stjórn var kjörin í janúar 2016 til tveggja ára, í henni sitja Steen Parsholt, Tom Grøndal og Mike Wheeler.

Greint er frá því í Viðskiptablaðinu í dag að stjórnin hafi boðist til að sitja áfram ef þeir fái laun upp á 8,8 milljónir á ári fyrir fimm daga vinnu. Það jafngildir rúmlega 600 þúsund krónum á tímann eða 73 þúsund á tímann. Bætist það ofan á milljarða króna í bónusgreiðslur. Fimm starfsmenn vinna hjá Glitni auk stjórnarinnar og nam launakostnaðurinn frá janúar til september 2017 rúmlega 400 milljónum króna. Samkvæmt ársreikningi 2016 voru laun Ingólfs Haukssonar forstjóra Glitnis rúmlega 88 milljónir króna, eða 7,3 milljónir á mánuði.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Næstdýrasta bensínið á Íslandi – Bara Hong Kong slær okkur við

Næstdýrasta bensínið á Íslandi – Bara Hong Kong slær okkur við
Fréttir
Í gær

Eldri maður fannst í angist úti á götu – „Ef þeir myndu velja konur á þeirra aldri væru þeir ólíklegri til þess að verða plataðir“

Eldri maður fannst í angist úti á götu – „Ef þeir myndu velja konur á þeirra aldri væru þeir ólíklegri til þess að verða plataðir“
Fréttir
Í gær

Hrollvekjandi uppgötvun í niðurníddu verksmiðjuhúsnæði sögð benda til þess að Madeleine McCann sé látin

Hrollvekjandi uppgötvun í niðurníddu verksmiðjuhúsnæði sögð benda til þess að Madeleine McCann sé látin
Fréttir
Í gær

Faðir Sigurbjargar stígur fram og gefur lítið fyrir svör Sigrúnar: „Mér þótti ég sjá lygina leka niður hökuna á henni“

Faðir Sigurbjargar stígur fram og gefur lítið fyrir svör Sigrúnar: „Mér þótti ég sjá lygina leka niður hökuna á henni“
Fréttir
Í gær

Indland gerir flugskeytaárás á Pakistan

Indland gerir flugskeytaárás á Pakistan
Fréttir
Í gær

„Við erum ekki með verkfallsrétt…en allur hópurinn er hins vegar með atkvæðisrétt og þá byrja menn að sperra eyrun“

„Við erum ekki með verkfallsrétt…en allur hópurinn er hins vegar með atkvæðisrétt og þá byrja menn að sperra eyrun“