Chris Sutton, fyrrum leikmaður Chelsea, hefur skotið fast á stjóra Manchester United, Jose Mourinho.
Mourinho ræddi við blaðamenn eftir sigur á Newcastle um helgina og talaði um sjálfan sig eins og fórnarlamb.
Sutton segir að Mourinho geri ekkert til að koma hlutunum í lag eftir lélega byrjun á tímabilinu.
,,Þetta hefur verið hörmulegt tímabil fyrir Manchester United,“ sagði Sutton í samtali við the BBC.
,,Hvað er Mourinho að gera til að hjálpa? Það eina sem hann gerir er að láta eins og fórnarlamb.“
,,Öll þessi vitleysa eftir leiki, þetta tal um Brexit og að honum sé kennt um allt saman, ég skil þetta ekki.“