„Sumarbústaður fæst gefins gegn því að vera sóttur. Allt innbú fylgir með,“ þannig hljómar auglýsing sem Sigríður Ólafsdóttir birti í Gefins, allt gefins! grúppunni á Facebook. Ekki kemur fram hvar umræddur bústaður er.
Auglýsingin hefur vakið mikla athygli og fólk keppist við að lýsa yfir áhug sínum eða óska eftir frekari upplýsingum. Sigríður segir í þræðinum að bústaðurinn sé á Suðurlandi, það taki um klukkustund að aka að svæðinu frá Reykjavík. Bústaðurinn sjálfur er um 50 fermetrar.
Þetta er í fyrsta sinn sem sumarbústaður er auglýstur gefins í grúppunni og margir því forvitnir og áhugasamir. Aðspurð hvort um grín sé að ræða, segir Sigríður það af og frá.
Sigríður vildi ekki tjá sig um málið þegar eftir því var leitað en sagði að hún þyrfti að losna við húsið og ein manneskja væri búin að boða komu sína á morgun til að skoða bústaðinn.