Miðjumaðurinn Tiemoue Bakayoko hefur skrifað undir samning við lið AC Milan á Ítalíu en þetta var staðfest í dag.
Franski landsliðsmaðurinn er 23 ára gamall en hann gerir eins árs langan lánssamning við ítalska stórliðið.
Bakayoko gekk aðeins í raðir Chelsea síðasta sumar en stóð ekki undir væntingum á sínu fyrsta tímabili.
Bakayoko var fyrir það á mála hjá Monaco þar sem hann stóð sig vel og vakti athygli stórliða Evrópu.
Talið er að AC Milan geti svo keypt leikmanninn næsta sumar fyrir 35 milljónir punda.