Það er veiðilíf eftir HM í fótboltanum hjá okkar mönnum en Kári Árnason var að veiða maríulaxinn sinn í Reykjadalsá í Borgarfirði á fluguna. Á sama tíma var Gylfi Sigurðsson á sjóstöng út á ballarhafi í aðeins stærri fiski og heitara veðri en Kári.
Kári var að landa maríulaxinum á flugu en Reykjadalsá hefur verið að gefa fína veiði í sumar. Gylfi er fyrir löngu búinn að veiða maríulaxinn og barðist við miklu stærri fiska en Kári sem tóku vel í hjá honum, Og báðir höfðu þeir betur.
Mynd. Kári Árnason að glíma við maríulaxinn í Reykjadalsá.
Mynd. Gylfi Sigurðsson að takast á við verulega vænan fisk á sjóstöngina.