fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Pressan

Fimm ólöglegir innflytjendur létust á flótta undan lögreglu í Texas

Kristján Kristjánsson
Mánudaginn 18. júní 2018 04:21

Frá vettvangi. Mynd:Skjáskot af vef KSAT.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Að minnsta kosti fimm létust í umferðarslysi í Texas í gær þegar ökumaður bifreiðar missti stjórn á henni með þeim afleiðingum að bifreiðin fór margar veltur og farþegar hentust út. Bifreiðinni hafði verið ekið á allt að 160 km/klst. 14 voru í bifreiðinni, flestir ólöglegir innflytjendur, sem landamæralögreglan veitti eftirför þegar slysið átti sér stað.

Fjórir voru úrskurðaðir látnir á vettvangi en sá fimmti við komuna á sjúkrahús. Nokkrir til viðbótar slösuðust alvarlega. Bílstjórinn var handtekinn en hann er bandarískur ríkisborgari að sögn lögreglunnar.

Slysið mun væntanlega ýta enn frekar undir heitar umræður um straum ólöglegra innflytjenda yfir landamærin frá Mexíkó. Þau mál hafa verið mikið í umræðunni undanfarna daga vegna nýrra vinnubragða innflytjendayfirvalda sem eru nú farin að taka börn af foreldrum sínum, þegar fjölskyldur koma yfir landamærin, og vista í sérstökum búðum fyrir börn á meðan foreldrunum er haldið í fangelsi.

Undanfarnar sex vikur hafa að minnsta kosti 2.000 börn verið aðskilin frá foreldrum sínum. Þetta staðfestu bandarísk yfirvöld á föstudaginn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Tæplega helmingur kínverskra stórborga er að sökkva

Tæplega helmingur kínverskra stórborga er að sökkva
Pressan
Fyrir 2 dögum

Lögreglan skýrir frá óhugnanlegum upplýsingum varðandi morð

Lögreglan skýrir frá óhugnanlegum upplýsingum varðandi morð
Pressan
Fyrir 3 dögum

Sanna sagan á bak við Netflixþættina Baby Reindeer sem hafa slegið í gegn – Hvað varð um Richard og Mörthu og hver er hin raunverulega Martha?

Sanna sagan á bak við Netflixþættina Baby Reindeer sem hafa slegið í gegn – Hvað varð um Richard og Mörthu og hver er hin raunverulega Martha?
Pressan
Fyrir 3 dögum

„Hefurðu séð lík?“ – 14 ára stúlka myrti móður sína og bauð vinkonu heim til að sjá líkið

„Hefurðu séð lík?“ – 14 ára stúlka myrti móður sína og bauð vinkonu heim til að sjá líkið
Pressan
Fyrir 4 dögum

Dæmd í fangelsi – Sendi stjörnunni 8.000 bréf á einum mánuði

Dæmd í fangelsi – Sendi stjörnunni 8.000 bréf á einum mánuði
Pressan
Fyrir 4 dögum

Gerði óhugnanlega uppgötvun heima hjá sér – Síðan hefur ráðgátan bara undið upp á sig

Gerði óhugnanlega uppgötvun heima hjá sér – Síðan hefur ráðgátan bara undið upp á sig