Vandræði með tölvupósthólf áttu sér eðlilegar skýringar
Viðskiptavinir Vodafone urðu einhverjir uggandi yfir því þegar í ljós kom á föstudag að þeir kæmust ekki inn í vefpóstþjónustu sína hjá fyrirtækinu. Ekki var þó ástæða til að hafa áhyggjur af því að tölvuþrjótar hefðu þar verið að verki því samkvæmt upplýsingum frá fyrirtækinu varð vélarbilun í búnaði sem gerði það að verkum að ýmist varð hægagangur á kerfinu og einhver hluti viðskiptavina komst ekki í pósthólfin sín um tíma.
Unnið var hörðum höndum að að viðgerðum í samstarfi við þjónustuaðila og var megnið komið í lag strax á laugardag, samkvæmt upplýsingum frá Vodafone. Erfiðlega hefur þó gengið að komast alveg fyrir bilunina þannig að einhverjir viðskiptavinir fundu enn fyrir vandræðunum á mánudag.
Samkvæmt upplýsingum frá Vodafone glötuðust engin gögn í biluninni.