fbpx
Mánudagur 29.apríl 2024

Uppfærðar siðareglur

Ritstjórn Eyjunnar
Þriðjudaginn 5. júní 2018 16:19

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Orðið á götunni er að nýjar siðareglur þingmanna, sem samþykktar voru í dag, muni stórbæta samskipti á þingi, fækka skapofsaköstum og hrópum úr sal. Siðareglurnar fela í raun í sér tvær breytingar. Annarsvegar þá að þingmenn leggi sig fram um að „skapa í störfum sínum heilbrigt starfsumhverfi innan þings sem utan og hvarvetna þar sem þeir sinna störfum sínum þar sem hafnað er hvers konar kynferðislegri eða kynbundinni áreitni, einelti eða annarri vanvirðandi framkomu.“

Og hinsvegar að þingmenn skuli  „ekki sýna öðrum þingmönnum, starfsmönnum þingsins eða gestum kynferðislega eða kynbundna áreitni, leggja þá í einelti eða koma fram við þá á annan vanvirðandi hátt.“

Þetta er gott og blessað og varla erfitt að fara eftir svo skýrum reglum fyrir siðað fólk.  Siðareglurnar  hafa í raun verið uppfærðar með #metoo byltinguna að leiðarljósi, sem verður að teljast gott mál, enda Alþingi eflaust engin undantekning frá öðrum vinnustöðum þegar kemur að háttsemi, eða öllu heldur skorti þar á.

Hafa ber í huga að Alþingi, sem óhefðbundinn vinnustaður, fellur ekki undir vinnuverndarlöggjöf líkt og önnur fyrirtæki eða stofnanir. Hvort það sé skýringin á því að þingmenn séu með þrasgjarnari stéttum er hæpin, en óneitanlega vekur ein setning siðareglnanna upp áleitnar spurningar, að þingmenn skuldbindi sig til að leggja sitt af mörkum til að skapa heilbrigt starfsumhverfi innan þings sem utan, sem sé laust við…“einelti, og aðra ótilhlýðilega framkomu.“

Orðið á götunni er að hér gæti stefnt í skilgreiningarvandamál, sökum eðlis starfsins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 3 klukkutímum

Baldur gefur lítið fyrir gamla skemmtistaðamynd sem hefur farið í mikla dreifingu – „Hólí mólí Baldur, hvernig vogarðu þér?“

Baldur gefur lítið fyrir gamla skemmtistaðamynd sem hefur farið í mikla dreifingu – „Hólí mólí Baldur, hvernig vogarðu þér?“
433Sport
Fyrir 3 klukkutímum

Ljóst að Sanchez söðlar um í sumar

Ljóst að Sanchez söðlar um í sumar
433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Ókvæðisorðum stöðugt hreytt í Greenwood – „Ég er viss um að köllin hafi áhrif á hann“

Ókvæðisorðum stöðugt hreytt í Greenwood – „Ég er viss um að köllin hafi áhrif á hann“
Fréttir
Fyrir 4 klukkutímum

Lögreglan sögð brjóta reglur um einkennismerki – Merki sérsveitarinnar eigi sér enga stoð

Lögreglan sögð brjóta reglur um einkennismerki – Merki sérsveitarinnar eigi sér enga stoð
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Er þetta sterk vísbending um að hann verði sá fyrsti sem Slot fær til Liverpool?

Er þetta sterk vísbending um að hann verði sá fyrsti sem Slot fær til Liverpool?
Fókus
Fyrir 6 klukkutímum

Aðdáendur hafa áhyggjur af Justin Bieber – Birti myndir af sér grátandi

Aðdáendur hafa áhyggjur af Justin Bieber – Birti myndir af sér grátandi
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Ofurtölvan stokkar spilin og aftur eru vendingar á toppnum

Ofurtölvan stokkar spilin og aftur eru vendingar á toppnum
Fréttir
Fyrir 7 klukkutímum

Jón Steinar studdi Arnar Þór en er búinn að skipta um skoðun

Jón Steinar studdi Arnar Þór en er búinn að skipta um skoðun