fbpx
Þriðjudagur 20.maí 2025
Fréttir

Heiðrún Birna kveðst hafa fundið orm í hamborgara frá Aktu Taktu: „Við tökum öllum ábendingum mjög alvarlega“

Björn Þorfinnsson
Föstudaginn 27. apríl 2018 13:05

Heiðrún Birna heldur því fram að hún hafi fundið orm í hamborgara frá Aktu Taktu. Hún birti myndband af viðbrögðum sínum á samfélagsmiðlum sem vakið hefur mikla athygli.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Óhætt er að segja að myndband Heiðrúnar Birnu Rúnarsdóttur af ormi, sem hún heldur fram að hafi leynst í hamborgara frá veitingastaðnum Aktu Taktu, hafi farið sem eldur um sinu á samfélagsmiðlum undanfarinn sólarhring.

Í myndbandinu, sem er 17 sekúndur að lengd, tilkynnir Heiðrún Birna áhorfendum að hún hafi fundið orm í hamborgaranum sínum. Síðan kúgast hún og vísar síðan myndavélinni að ormi sem liggur hreyfingalaus á jörðinni. Um 18 þúsund manns hafa horft á myndbandið þegar þessi orð eru rituð.

Henti orminum eftir myndatöku

Í samtali við DV segir Heiðrún Birna að hún hafi tilkynnt atvikið til Heilbrigðiseftirlitisins og hún voni að engin lendi í svipuðu atviki: „Þetta var ógeðslegt. Ég fann strax að kjötið var ekki eins og það átti að vera. Ormurinn datt síðan í kjöltuna á mér,“ segir Heiðrún Birna. Hún segist hafa pantað sér hamborgara bara með kjöti  og því hljóti kvikindið að hafa leynst í kjötinu.  Eftir að hafa myndað dýrið henti hún því.

Að sögn Heiðrúnar Birnu átti atvikið stað aðfaranótt sunnudagsins 4.mars. Hún hafi síðan sent Foodco hf. myndbandið í byrjun næstu viku. Hún segist að mörgu leyti vera ánægð með viðbrögð fyrirtækisins, sem á og rekur Aktu Taktu veitingastaðina. Hún fékk gjafabréf á annan veitingastað í eigu fyrirtækisins en þjónustan hafi ekki verið uppá marga fiska. „Ég hef ekki lyst á að borða á Aktu Taktu aftur,“ segir Heiðrún Birna.

Taka ábendingunni mjög alvarlega

Í samtali við DV segir Ásta Sveinsdóttir, upplýsinga- og samskiptastjóri Foodco hf., aldrei hafa heyrt af sambærilegu atviki á átta ára ferli. „Við tökum öllum ábendingum mjög alvarlega og brugðumst strax við með því að   bjóða viðskiptavininum gjafabréf í skaðabætur. Gæðastjóri fyrirtækisins fór samstundis yfir alla verkferla auk þess að hafa strax  samband við okkar birgja,“ segir Ásta.

Hún segir að fyrirtækið taki gæðamál afar alvarlega og vilji komast til botns í hvað þarna gæti hafa gerst. „Við seljum gríðarlegt magn af hamborgurum á hverjum og erum, eins og allir aðrir veitingastaðir, undir ströngu eftirliti hjá opinberum aðilum. Við viljum rannsaka þetta mál ítarlega og því var óheppilegt að við fengum ekki að sjá orminn,“ segir Ásta. Hún segir einkennilegt að ormurinn hafi virst heillegur enda er allt kjöt hakkað og síðan steikt á pönnu.

„Við höfum ekkert heyrt frá Heilbrigðiseftirlitinu vegna málsins,“ segir Ásta.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

„Sé ég mig knúinn til að svara fyrir síendurteknar ásakanir, rógburð og yfirgang körfuboltaþjálfarans Brynjars Karls Sigurðssonar“

„Sé ég mig knúinn til að svara fyrir síendurteknar ásakanir, rógburð og yfirgang körfuboltaþjálfarans Brynjars Karls Sigurðssonar“
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Íslendingum á leið til Bretlands stendur ekki til boða sama þjónusta og Bretum á leið til Íslands

Íslendingum á leið til Bretlands stendur ekki til boða sama þjónusta og Bretum á leið til Íslands
Fréttir
Í gær

Öfga hægri maður vinsælastur hjá Pólverjum á Íslandi – Ísland sker sig úr í Evrópu

Öfga hægri maður vinsælastur hjá Pólverjum á Íslandi – Ísland sker sig úr í Evrópu
Fréttir
Í gær

Nágrannar óttast Sigurð Almar – „Gerðist í fyrsta skipti á ævinni að ég hikaði við að fara út úr húsi“

Nágrannar óttast Sigurð Almar – „Gerðist í fyrsta skipti á ævinni að ég hikaði við að fara út úr húsi“