fbpx
Sunnudagur 05.maí 2024
433

Haukur segir stutt í kúkinn – ,,Við getum spilað alveg herfilega leiki ef hausinn er ekki rétt skrúfaður á“

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 25. apríl 2018 10:19

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það eru allir á því að Valur muni vinna Pepsi deildina í sumar en liðið hefur leik gegn KR á föstudag klukkan 20:00.

Haukur Páll Sigurðsson fyrirliði Vals er klár í slaginn en hann fór yfir hlutina í hlaðvarpsþætti Vals, Vængjum þöndum.

,,Það getur farið öfugt í menn, ég held að leikmannahópurinn viti það alveg að við getum spilað alveg herfilega leiki ef hausinn er ekki rétt skrúfaður á. Við erum meðvitaðir um það hvað við þurfum að leggja í hvern leik,“ sagði Haukur Páll í þættinum.

Valsmenn fór í æfingaferð til Bandaríkjanna á dögunum þar sem liðið slípaði sig saman.

,,Ef við erum ekki með grunnatriðin í lagi þá erum við ekki góðir, við vitum að við erum gott fótboltalið. Það þarf að leggja ákveðna vinnu í hvern leik, ef hún kemur þá mun fótboltinn fylgja með.“

,,Við slípuðum okkur vel saman úti í ferðinni og það hefur gengið vel í þessum leikjum síðan við komum heim, við ætlum að láta það halda áfram inn í mótið.“

Þáttinn má heyra hér að neðan en Benedikt Bóas Hinriksson stýrir þættinum.

[soundcloud url=“https://api.soundcloud.com/tracks/434449398″ params=“color=#ff5500&auto_play=false&hide_related=false&show_comments=true&show_user=true&show_reposts=false&show_teaser=true&visual=true“ width=“100%“ height=“300″ iframe=“true“ /]

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Ten Hag sannfærður um að hann verði áfram við stjórnvölin – ,,Ég gefst ekki upp“

Ten Hag sannfærður um að hann verði áfram við stjórnvölin – ,,Ég gefst ekki upp“
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Ipswich spilar í ensku úrvalsdeildinni – Voru nýkomnir í næst efstu deild

Ipswich spilar í ensku úrvalsdeildinni – Voru nýkomnir í næst efstu deild
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

UEFA staðfestir breytingarnar – Frábærar fréttir fyrir EM í Þýskalandi

UEFA staðfestir breytingarnar – Frábærar fréttir fyrir EM í Þýskalandi
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Búinn að vinna gullhanskann eftir leikinn í gær

Búinn að vinna gullhanskann eftir leikinn í gær
433Sport
Í gær

Gæti snúið aftur í ensku úrvalsdeildina í sumar

Gæti snúið aftur í ensku úrvalsdeildina í sumar
433
Í gær

Besta deild kvenna: Tindastóll gerði góða ferð í Garðabæinn – Breiðablik með þægilegan sigur

Besta deild kvenna: Tindastóll gerði góða ferð í Garðabæinn – Breiðablik með þægilegan sigur