Jurgen Klopp stjóri Liverpool segir að FC Bayern hafi aldrei reynt að ráða sig stil starfa sem þjálfara.
Oft hefur Klopp verið orðaður við Bayern og nú síðast í vetur en Niko Kovac tekur við liðinu í sumar.
Klopp er afar ánægður í Bítlaborginni og er með samning til fjögurra ára á Anfield.
,,Ég hef aldrei haft neina klásúlu í mínum samningi,“ sagði Klopp.
,,Ef Bayern hefði haft samband þá hefði það verið mjög erfitt fyrir mig að taka því, ég er með samning til fjögurra ára hérna.“
,,Liverpool eru ekki ósáttir með mig, Bayern hefur líka aldrei haft samband.“