fbpx
Fimmtudagur 18.september 2025
Eyjan

Lætur íslenska ríkisstjórnin Trump hafa áhrif á sig?

Egill Helgason
Fimmtudaginn 21. desember 2017 14:21

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Við hljótum að gera ráð fyrir því að Ísland greiði atkvæði með ályktun sem beinist gegn viðurkenningu á Jerúsalem sem höfuðborg Ísraels. Um ályktunina verður kosið á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna. Hún áréttar margar samþykktir á vettvangi SÞ þar sem segir að staða Jerúsalem skuli ákvarðast í samningum milli Ísraels og Palestínu.

Donald Trump hefur hótunum vegna þessa máls, meðal annars gegn ríkjum sem þiggja þróunaraðstoð af Bandaríkjunum. Íslenska ríkisstjórnin fékk bréf frá Nikki Haley, sendiherra Bandaríkjunum hjá SÞ, þar sem sagði að það gæti haft afleiðingar ef greidd væru atkvæði gegn Bandaríkjunum. Mörg fleiri ríki fengu slíkt bréf.

Frá diplómatískum sjónarhóli þykir þetta mjög óvenjulegt – og í hæsta máta óviðeigandi.

Íslenska utanríkisráðuneytið hefur tilkynnt að það muni ráðfæra sig við hin Norðurlöndin – og þá væntanlega greiða atkvæði eins og þau. Árið 2011 viðurkenndi Ísland sjálfstæði Palestínu.

Stjórnir Bandaríkjanna og Ísraels láta ófriðlega vegna þessa á alþjóðavettvangi, Benjamin Netanyahu lýsir því yfir að SÞ sé lygabæli og Ísrael taki ekkert mark á atkvæðagreiðslunni.  Talið er að allt að 150 ríki af 193 á Allsherjarþinginu muni greiða atkvæði með ályktuninni. Svipuð ályktun var samþykkt af 14 ríkjum af 15 í Öryggisráði SÞ, en Bandaríkin beittu neitunarvaldi. Ósigurinn blasir semsagt við.

Talið er hugsanlegt að Ungverjaland og Tékkland muni láta undan þrýstingi Bandaríkjanna. Það eru ríki sem eru bæði á mjög einkennilegu róli. En hvað gerir Ísland? Lætur ríkisstjórnin Trump hafa áhrif á sig?

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 1 viku

Framkvæmdastjóri N1: Finnum fyrir velvilja úti á landi – meiri andstaða í höfuðborginni

Framkvæmdastjóri N1: Finnum fyrir velvilja úti á landi – meiri andstaða í höfuðborginni
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Forseti hefur lög að mæla – fólk vill ekki endurtekna gíslatöku á Alþingi

Orðið á götunni: Forseti hefur lög að mæla – fólk vill ekki endurtekna gíslatöku á Alþingi
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Ríkisstjórnin er að moka flórinn eftir sjö ára óstjórn fyrri ríkisstjórnar

Orðið á götunni: Ríkisstjórnin er að moka flórinn eftir sjö ára óstjórn fyrri ríkisstjórnar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Það skiptir máli hverjir stjórna – berin eru súr, sagði Mikki refur

Orðið á götunni: Það skiptir máli hverjir stjórna – berin eru súr, sagði Mikki refur