fbpx
Þriðjudagur 11.nóvember 2025
Eyjan

Uppreisnarmaður sigrar í VR

Egill Helgason
Þriðjudaginn 14. mars 2017 19:04

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ragnar Þór Ingólfsson er nýr formaður hins stóra og volduga verkalýðsfélags VR. Ragnar sigraði frambjóðanda „kerfisins“, sitjandi formann, Ólafíu Rafnsdóttur, með yfirburðum. Þarna er Ragnar kominn nærri stjórnun lífeyrissjóðanna – sem hann hefur gagnrýnt harðlega.

Ragnar kemur að utan – hann er utangarðsmaður í þessum félagsskap og hefur gagnrýnt verkalýðshreyfinguna og lífeyrissjóðina harðlega. Ragnar kom í Silfur Egils eftir hrun og ræddi lífeyrissjóðina – ég man að forsvarsmenn þeirra brugðust mjög illa við. Mér fannst á þeim tíma að þeir, með sín miklu völd, starfsmannafjöld, fé og afl til að auglýsa,  þyrftu ekki að vera svona taugaveikaðir vegna orða þessa eina verslunarmanns sem vann við að selja reiðhjól. En Ragnar olli miklum skjálfta.

Það hafa reyndar verið ótrúlegar sviptingar í VR (sem eitt sinn hét Verslunarmannafélag Reykjavíkur en heitir víst Virðing, réttlæti núna) síðan á tíma hrunsins. Gunnar Páll Pálsson var settur af, einkum vegna tengsla sinna við Kaupþing. Þá tók við Kristinn Örn Jóhannesson sem sat í tvö ár en tapaði þá fyrir Stefáni Einari Stefánssyni í formannskjöri. Fráfarandi formaður, Ólafía Rafnsdóttir, sigraði Stefán Einar svo með yfirburðum og náði að gegna formennskunni í fjögur ár. En hún fellur nú fyrir Ragnari – sem má kalla uppreisnarmann.

Ragnar hefur sagt að taka þurfi til í lífeyrissjóðskerfinu. Það verður forvitnilegt að sjá hvernig honum reiðir af í hinu nýja embætti.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 1 viku

Reynir Traustason: Mikil mistök að sameinast Kjarnanum

Reynir Traustason: Mikil mistök að sameinast Kjarnanum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Reynir Traustason: „Haltu kjafti, gamla fiskibollan þín!“

Reynir Traustason: „Haltu kjafti, gamla fiskibollan þín!“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Reynir Traustason: Tók bara utan um stefnuvottinn og þakkaði honum fyrir að koma með bréfið

Reynir Traustason: Tók bara utan um stefnuvottinn og þakkaði honum fyrir að koma með bréfið
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Nú vaknar Vilhjálmur upp við áralangt sukk

Orðið á götunni: Nú vaknar Vilhjálmur upp við áralangt sukk