fbpx
Sunnudagur 22.mars 2026
Eyjan

Hvar er Stjórnstöð ferðamála?

Egill Helgason
Sunnudaginn 6. mars 2016 19:40

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bandarísk kona sem við þekkjum kom til Íslands í vetur. Hún byrjaði á því að panta sér tvær nætur við Bláa lónið. Svo kom hún þaðan til Reykjavíkur. Henni fannst lítið til lónsins koma, hún notaði frekar kurteislegt enskt orð, sagðist vera underwealmed.

Bláa lónið er einhver mest kynnti staður á Íslandi. Það er samt ekki víst að túristar sem hingað koma geri sér alveg grein fyrir því hvað það er – og að fyrir marga er kannski betra að fara bara í eina af hinum ágætu sundlaugum landsins, þar sem aðgangseyrir ekki nema brot af því sem er í Bláa lónið og ekki verið að rýja neinn inn að skyrtunni.

Nú sér maður deilt á internetinu grein um Bláa lónið sem birtist á erlendum ferðavef, það verður að segjast eins og er, þar er fátt sem kemur á óvart. Höfundarnir segja að Bláa lónið sé sóun á tíma og peningum.

Og svo er enn rætt um ástandið við náttúruperlurnar sem þangað sem við sendum ferðamenn í hundrað þúsunda tali. Það er birt myndband af túristum sem eru að staulast um í skelfilegri hálku við Gullfoss. Þetta er reyndar dálítið hallærislega orðað í viðtali við leiðsögumann á mbl.is:

Við þurf­um að skýra aðgengi að vör­unni. Og við erum ekki að gera það. Það er al­gjört óreiðuóstand við Gull­foss og það er al­gjört óreiðuástand við Geysi.

„Varan“ er semsagt Gullfoss og Geysir. Jú, það má kannski orða það þannig. En allt ber að sama brunni: Græðgi, peningaplokk, sinnuleysi, fyrirhyggjuleysi og léleg aðstaða á ferðamannastöðum. Það má taka peninga af ferðamönnum, en helst ekki kosta neinu til svo tryggja megi vellíðan þeirra og öryggi.

Hvað eru stjórnvöld að hugsa? Eftir hverju er beðið?

Á síðasta ári var sett á laggirnar með pompi og prakt Stjórnstöð ferðamála. Það var ráðinn forstjóri á ofurlaunum. Síðan hefur ekkert spurst til stjórnstöðvarinnar þótt liðið sé hálft ár. Ekki hósti né stuna. Á sama tíma hefur ferðamönnum fjölgað um tugi prósenta í vetrarferðamennsku sem við virðumst satt að segja vera illa búin undir.

Stjórnstöðin er til dæmis ekki með vefsíðu. Ekki virðist hún heldur hafa síðu á Facebook – svoleiðis síðu er hægt að koma upp á örfáum mínútum. En kannski miðlar hún upplýsingum um sitt mikla starf með öðrum hætti?

 

Myndband af ferðamönnum við Gullfoss, tekið í gær. Takið eftir parinu með litla barnið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

„Við munum vinda ofan af þessu bakslagi“

„Við munum vinda ofan af þessu bakslagi“
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Haraldur Ólafsson: ESB er ekki fyrir Jón Gnarr 

Haraldur Ólafsson: ESB er ekki fyrir Jón Gnarr 
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Samtök atvinnulífsins hafa örlög kjarasamninga í hendi sér

Orðið á götunni: Samtök atvinnulífsins hafa örlög kjarasamninga í hendi sér
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Inga móðgaðist í óundirbúnum fyrirspurnartíma: „Er ekki allt í lagi? Ég hef aldrei heyrt aðra eins fyrirspurn á ævinni“

Inga móðgaðist í óundirbúnum fyrirspurnartíma: „Er ekki allt í lagi? Ég hef aldrei heyrt aðra eins fyrirspurn á ævinni“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Hræðslubandalagið óttast góðan samning

Sigmundur Ernir skrifar: Hræðslubandalagið óttast góðan samning
Eyjan
Fyrir 1 viku

Andri Þór Guðmundsson: Íslendingar gera betur við sig en ferðamenn

Andri Þór Guðmundsson: Íslendingar gera betur við sig en ferðamenn
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Nína Richter skrifar: Kommóða formóður minnar úr Flatey

Nína Richter skrifar: Kommóða formóður minnar úr Flatey
Eyjan
Fyrir 1 viku

Andri Þór Guðmundsson: Verkefnið að fá samstarfsaðila sem kemur með meira en bara peninga

Andri Þór Guðmundsson: Verkefnið að fá samstarfsaðila sem kemur með meira en bara peninga