fbpx
Sunnudagur 22.mars 2026
Eyjan

Tvö mismunandi ákvæði um auðlindir Íslands

Egill Helgason
Föstudaginn 19. febrúar 2016 19:51

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Auðlindákvæði í tillögum stjórnarskrárnefndar sem voru birtar í dag:

Auðlindir náttúru Íslands tilheyra íslensku þjóðinni. Þær ber að nýta á sjálfbæran hátt og til hagsbóta landsmönnum öllum. Ríkið hefur eftirlit og umsjón með meðferð og nýtingu auðlindanna í umboði þjóðarinnar.

Náttúruauðlindir og landsréttindi sem ekki eru háð einkaeignarrétti eru þjóðareign.

Enginn getur fengið þessi gæði eða réttindi tengd þeim til eignar eða varanlegra afnota og aldrei má selja þau eða veðsetja. Handhafar löggjafarvalds og framkvæmdarvalds fara með forsjá og ráðstöfunarrétt þeirra í umboði þjóðarinnar.

Að jafnaði skal taka eðlilegt gjald fyrir heimildir til nýtingar auðlinda sem eru í eigu íslenska ríkisins eða þjóðareign. Veiting nýtingarheimilda skal grundvallast á lögum og gætt skal jafnræðis og gagnsæis. Slíkar heimildir leiða aldrei til varanlegs eignarréttar eða óafturkallanlegs forræðis yfir auðlindum.

 

Auðlindaákvæði í tillögum stjórnlagaráðs frá 2011:

Auðlindir í náttúru Íslands, sem ekki eru í einkaeigu, eru sameiginleg og ævarandi eign þjóðarinnar. Enginn getur fengið auðlindirnar, eða réttindi tengd þeim, til eignar eða varanlegra afnota og aldrei má selja þær eða veðsetja.

Til auðlinda í þjóðareign teljast náttúrugæði, svo sem nytjastofnar, aðrar auðlindir hafs og hafsbotns innan íslenskrar lögsögu og uppsprettur vatns- og virkjunarréttinda, jarðhita- og námaréttinda. Með lögum má kveða á um þjóðareign á auðlindum undir tiltekinni dýpt frá yfirborði jarðar.

Við nýtingu auðlindanna skal hafa sjálfbæra þróun og almannahag að leiðarljósi.

Stjórnvöld bera, ásamt þeim sem nýta auðlindirnar, ábyrgð á vernd þeirra. Stjórnvöld geta á grundvelli laga veitt leyfi til afnota eða hagnýtingar auðlinda eða annarra takmarkaðra almannagæða, gegn fullu gjaldi og til tiltekins hóflegs tíma í senn. Slík leyfi skal veita á jafnræðisgrundvelli og þau leiða aldrei til eignarréttar eða óafturkallanlegs forræðis yfir auðlindunum.

Nú geta menn borið saman. Það vekur athygli að í tillögum stjórnarskrárnefndarinnar segir að  að jafnaði skuli taka eðlilegt gjald fyrir nýtingu auðlinda, en í tillögum stjórnlagaráðs segir fullt gjald og þar að auki er þar tekið fram að það skuli vera til tiltekins hóflegs tíma í senn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Stjórnvöld ættu að hafa alvarlegar áhyggjur

Þorsteinn Pálsson skrifar: Stjórnvöld ættu að hafa alvarlegar áhyggjur
Eyjan
Fyrir 4 dögum

„Við munum vinda ofan af þessu bakslagi“

„Við munum vinda ofan af þessu bakslagi“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Jón Gnarr skrifar: ESB ske es spé

Jón Gnarr skrifar: ESB ske es spé
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Hræðslubandalagið óttast góðan samning

Sigmundur Ernir skrifar: Hræðslubandalagið óttast góðan samning
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Sjálfstæðisflokkur áfram óstjórntækur – enn vandræðagangur – aðrir flokkar með öfluga lista

Orðið á götunni: Sjálfstæðisflokkur áfram óstjórntækur – enn vandræðagangur – aðrir flokkar með öfluga lista
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Nína Richter skrifar: Kommóða formóður minnar úr Flatey

Nína Richter skrifar: Kommóða formóður minnar úr Flatey