fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Eyjan

Landsfundir, Sjallar skamma VG, stjórnarmynstur, óráð

Egill Helgason
Miðvikudaginn 28. febrúar 2007 14:36

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Er það ofdirfska hjá Samfylkingunni að halda landsfund um sömu helgi og Sjálfstæðisflokkurinn, lævíslegt plan eða bara klúður? Ég hef komið á marga landsfundi Sjálfstæðisflokksins – við þá samkomu keppa ekki aðrar stjórnmálahreyfingar, ekki hvað varðar aðsókn, umgjörð og stemmingu. Það er einfaldlega þannig. Sjálfstæðisflokkurinn er fjöldahreyfing með langar hefðir, því nær Samfylkingin tæplega. Hún þekkir ekki hið fágaða samkenndarþel sem ríkir á landsfundum Sjálfstæðisflokksins.

En það er ljóst að helgina eftir páska berjast þessir stjórnmálaflokkar um fjölmiðlaathyglina. Hvað á ég að gera? Éghef yfirleitt boðið formönnum flokka sem halda landsfundi í Silfrið á sunnudegi. En einhvern veginn finnst mér ekki líklegt að Geir Haarde og Ingibjörg Sólrún vilji deila sviðsjósinu á þessum tíma.

— — —

Það er að verða dálítil breyting á pólitískri umræðu eftir landsfund Vinstri grænna. Sjálfstæðismenn eru farnir að taka á Vinstri grænum. Það hefur maður varla séð áður. Sjálfstæðismenn hafa þvert á móti látið sér vel líka að VG taki fylgi frá Samfylkingunni. Jafnvel hvatt Steingrím J. og hans fólk áfram undir rós – með því að segja að VG-arar séu svo stefnufastir, einarðir og samkvæmir sjálfum sér.

En nú kveður við örlítið annan tón. Á fjölda vefsíðna sem eru skrifaðar af Sjálfstæðismönnum fá Vinstri grænir að finna til tevatnsins. Þeir eru jafnvel kallaðir kommúnistar. Sumir skríbentarnir halda því fram að þeir séu ekki stjórntækir og vísa til orða Steingríms J. um netlögreglu, hugmynda um að stjórnarskrárbinda jafnræði milli karla og kvenna í stjórnum fyrirtækja, á Alþingi og í ríkisstjórn og skattkerfisbreytinga sem voru boðaðar á landsfundinum.

— — —

Það skyldi þó ekki vera að líkurnar á ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar séu að aukast? Spyr sá sem ekki veit. Hins vegar hitti ég fróðan mann sem hélt því fram að við fengjum ríkisstjórn eftir gömlu vinstristjórnarmynstri með Samfylkingu, VG og Framsóknarflokki. Síðastnefndi flokkurinn myndi fara niður í tólf prósent í kosningunum, það yrði túlkað sem varnarsigur og síðan ákveddu flokksmenn að sýna vinstri vangann og setjast í stjórn – líklega undir forsæti Ingibjargar Sólrúnar.

Steingrímur J. yrði þá væntanlega utanríkisráðherra og Jón Sigurðsson fjármálaráðherra – þótt reyndar sé hætt við að hann nái ekki einu sinni inn á þing.

— — —

En kannski er ég bara með fullkomnu óráði. Ég ligg heima í rúminu með flensu og leiðist ógurlega.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Willum Þór Þórsson: Íþróttahreyfingin samofin sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar

Willum Þór Þórsson: Íþróttahreyfingin samofin sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Fylgi stjórnmálaflokka: Samfylkingin og Miðflokkurinn styrkjast – Sjálfstæðisflokkur og Framsókn áfram á niðurleið

Fylgi stjórnmálaflokka: Samfylkingin og Miðflokkurinn styrkjast – Sjálfstæðisflokkur og Framsókn áfram á niðurleið
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Thomas Möller skrifar: Gamlar fréttir og nýjar

Thomas Möller skrifar: Gamlar fréttir og nýjar
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum
Landráðamenn
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Jón Gnarr skrifar: Meitlað í stein

Jón Gnarr skrifar: Meitlað í stein
Eyjan
Fyrir 1 viku

Regína ætlar að hætta sem bæjarstjóri Mosfellsbæjar

Regína ætlar að hætta sem bæjarstjóri Mosfellsbæjar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Sigmundur Davíð borgarstjóraefni? – Miðflokkur á flugi og átök um lista Sjálfstæðisflokksins

Orðið á götunni: Sigmundur Davíð borgarstjóraefni? – Miðflokkur á flugi og átök um lista Sjálfstæðisflokksins