fbpx
Laugardagur 13.desember 2025
Eyjan

Steingrímur forsætisráðherra, Davíð í vitnastúkuna, stéttarvitund stjórnarmanna, bjórinn

Egill Helgason
Fimmtudaginn 1. mars 2007 18:53

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Er hið ótrúlega í sjónmáli? Að Steingrímur J. Sigfússon verði forsætisráðherra eftir kosningarnar í vor? Þá verður nú ekki doði í pólitíkinni. Fylgisaukning VG í skoðanakönnunum virðist ætla að halda býsna lengi – nú síðast hjá Gallup. Samfylkingin er í tómu tjóni. Og það er greinilegt að margir eru farnir að fyllast áhyggjum. Lengi vel var látið með flokkinn hans Steingríms eins og hann væri bara skrítinn og skemmtilegur, svona eins og hressilegt ungmennafélag. Nú er farinn að stafa ógn af honum og þá eru viðbrögðin önnur.

Kapítalistar eru uggandi um sinn hag. Sjálfstæðismenn eru loks farnir að taka á Steingrími með öðru en silkihönskum. Til eru Sjálfstæðismenn sem hérumbil aldrei setja orð á blað nema til að skrifa um Samfylkingunna. Ef til vill fer það að breytast?

Altént bendir allt til að atlögurnar að Steingrími verði harðari fram að kosningum, eins og mátti til dæmis heyra í þinginu í morgun þegar rætt var um afstöðu hans til virkjana í Þjórsá. Máski verður Samfylkingin í nokkru skjóli á meðan og er því kannski fegin?

— — —

Það er algjört möst að láta Davíð bera vitni í Baugsmálinu. Þó ekki sé nema vegna skemmtanagildisins. Þyrfti eiginlega að sýna það beint í sjónvarpinu. Fyrir utan hvað maður vonar að atburðir Bolludagsmálsins, þessarar hliðargreinar Baugsmálsins,skýrist ef hann er settur undir eið fyrir dómstóli. Annars fær maður kannski aldrei að vita sannleikann í málinu. Davíð sagði einhvern tíma að hann ætlaði ekki að skrifa ævisögu sína.

Er Davíð ekki barasta lykilvitnið? Jafnvel þó hann tengist ekki beinlínis neinu af ákæruatriðunum. En málið er hvort sem er orðið svo ruglingslegt að það meikar ekki diff.

— — —

Tvöföldun eða þreföldum launa stjórnarmanna og stjórnarformanna er eins og að æla framan í þjóðina. Kemur samt ekki á óvart. Þarna er ákveðinn hópur manna sem á stéttarhagsmuna að gæta. Laun þeirra eru hækkuð, á móti hækka þeir laun hjá stéttarbræðrum sínum þegar þeir hafa færi til. Fyrir utan allra kaupréttarsamningana. Þannig sjá menn um sína og allir eru hæstánægðir. Nema kannski tuðandi almúginn.

Svo halda menn því fram að misskiptingin í þjóðfélaginu sé ekki að aukast. Ha!

— — —

Það er bjórdagurinn í dag. Ungir Sjálfstæðismenn eru af því tilefni að rifja upp ummæli ýmissa andstæðinga bjórsins. Uppáhaldsummælin mín eru komin frá áðurnefndum Steingrími – bera keim af einhvers konar blöndu af marxisma og ungmennafélagshugsjón:

"Ég hef til viðbótar pólitískar ástæður fyrir því að ég vil ekki standa að breytingum hvorki í áfengismálum né annars staðar sem gera fólkið óvirkara og sljórra gagnvart umhverfi sínu. Það tel ég að stóraukin neysla bjórs, jafnvel þó að eitthvað dragi úr neyslu annarra áfengistegunda, mundi gera."

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Svarthöfði skrifar: Stjórnarandstaðan krossleggur lappir og þykist óspjölluð og hrein – talar gegn lýðræði

Svarthöfði skrifar: Stjórnarandstaðan krossleggur lappir og þykist óspjölluð og hrein – talar gegn lýðræði
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Karl Ágúst Úlfsson: Þýðingin sögð frumtextanum fremri – ekki lítið hrós fyrir tvítugan ungling

Karl Ágúst Úlfsson: Þýðingin sögð frumtextanum fremri – ekki lítið hrós fyrir tvítugan ungling
Eyjan
Fyrir 1 viku

Stjórnarandstaðan gagnrýndi fjarveru Guðmundar Inga – Var svo upplýst um að ráðherra liggur á sjúkrahúsi

Stjórnarandstaðan gagnrýndi fjarveru Guðmundar Inga – Var svo upplýst um að ráðherra liggur á sjúkrahúsi
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Ari Kr. Sæmundsen skrifar: Biðskylda

Ari Kr. Sæmundsen skrifar: Biðskylda
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku
Reiði skólameistarinn
Eyjan
Fyrir 1 viku

Björg Magnúsdóttir: Er spennt fyrir leiðtogakjöri hjá Viðreisn – liggur undir feldi

Björg Magnúsdóttir: Er spennt fyrir leiðtogakjöri hjá Viðreisn – liggur undir feldi
Eyjan
Fyrir 1 viku

Fylgi Miðflokks eykst enn – Stuðningur við ríkisstjórnina minnkar

Fylgi Miðflokks eykst enn – Stuðningur við ríkisstjórnina minnkar