fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Eyjan

Vondar auglýsingar, of duglegur þingforseti, pólitísk óvissa

Egill Helgason
Föstudaginn 27. apríl 2007 20:22

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nokkrar kosningaauglýsingar vekja athygli fyrir hvað þær eru vondar. Þar skal fyrsta telja vefauglýsingu Samfylkingarinnar á Suðurlandi þar sem frambjóðarnir spila billjarð og Lúðvík Bergvinsson kallar Róbert Marshall "sprækan strák". Í flokki sem hefur rauða kúlu sem tákn er sorglegt að engum frambjóðendanna skuli takast að setja kúluna niður.

Svo er það auglýsing Framsóknarflokksins þar sem Samúel Örn og Siv eru að kyssast. Hún er hræðileg. Eða eins og einhver sagði: "Áin þrjú hafa hlotið nýja merkingu….Á, Ái, Ááááíii!!"

Þessa auglýsingu má sjá hér að ofan.

Einna verst er þó auglýsingin með Katrínu Jakobsdóttur sem hangir víða í bænum. Hún er segja eitthvað eins og Stöðug framfarasókn eða Til móts við framtíðina, einhvern slíkan frasa sem ómögulegt er að muna, en ljósmyndin af henni er tekin fyrir framan einstaklega ljótar blokkir í Austur-Þýskum stíl – minnir helst á það sem var kallað plattenbau í því landi.

— — —

Nú er búið að gera forseta Alþingis að ráðherraígildi með einkabílstjóra og öllu tilheyrandi og þá þarf hann líka að hafa eitthvað að gera. Þetta hefur einkum birst í stöðugum framkvæmdum við Alþingishúsið undanfarin ár. Nú þegar er búið að byggja allt sem með góðu móti er hægt að byggja, gera upp húsin svo þau eru í toppstandi er eiginlega ekki hægt að finna neitt meira – eða hvað? – jú, húsgögnin eru ekki alveg sæmandi þessari merku stofnun.

Því skulu húsgögnin endurnýjuð í sumar – að sögn forseta þingsins til að gefa "heildstæðara yfirbragð".

Hvenær skyldi vera von á gullklósettinu?

— — —

Kári er búinn að taka afstöðu í pólitíkinni. Þetta er nokkuð einfalt. Hann fór í Húsdýragarðinn með vinkonu sinni. Þar fékk hann gefins höfuðbúnað sem í daglegu tali kallast "buff" með merki Samfylkingarinnar.

XS stendur á höfuðklútnum. Ég spurði Kára hvort hann ætlaði að kjósa XS.

"Já, af því stafurinn S er stafurinn hennar mömmu."

Í morgun þegar við vorum á leiðinni í leikskólann voru þó greinilega að renna tvær grímur á barnið. Hann spurði:

"Hvað er hann eiginlega þessi Sjálfstæðisflokkur?"

Kannski er honum bara farið eins og pabbanum sem skipar hinn fjölmenna flokk óákveðinna kjósenda.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Willum Þór Þórsson: Íþróttahreyfingin samofin sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar

Willum Þór Þórsson: Íþróttahreyfingin samofin sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Fylgi stjórnmálaflokka: Samfylkingin og Miðflokkurinn styrkjast – Sjálfstæðisflokkur og Framsókn áfram á niðurleið

Fylgi stjórnmálaflokka: Samfylkingin og Miðflokkurinn styrkjast – Sjálfstæðisflokkur og Framsókn áfram á niðurleið
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Thomas Möller skrifar: Gamlar fréttir og nýjar

Thomas Möller skrifar: Gamlar fréttir og nýjar
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum
Landráðamenn
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Jón Gnarr skrifar: Meitlað í stein

Jón Gnarr skrifar: Meitlað í stein
Eyjan
Fyrir 1 viku

Regína ætlar að hætta sem bæjarstjóri Mosfellsbæjar

Regína ætlar að hætta sem bæjarstjóri Mosfellsbæjar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Sigmundur Davíð borgarstjóraefni? – Miðflokkur á flugi og átök um lista Sjálfstæðisflokksins

Orðið á götunni: Sigmundur Davíð borgarstjóraefni? – Miðflokkur á flugi og átök um lista Sjálfstæðisflokksins