
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir er mjög dugleg kona.
Og hún hefur um sig hóp duglegs fólks sem ábyggilega vill láta gott af sér leiða.
En er ekki hægt að beina kröftunum í einhverja skynsamlegri átt en að vera á útopnu vegna þessa framboðs til Öryggisráðsins?
Sem vísustu menn segja að sé vonlaust.
Ég sé ekki betur en að Ingibjörg sé að grafa undan flokki sínum með þessu. Það er ábyggilega áhugavert að þeytast milli Afganistan og Karíbahafsins með fjölmennar sendinefndir.
En meðan allt er að fara í kalda kol í efnahagsmálunum heima held ég að sé öruggt að fólk fílar þetta ekki.
Ég get sagt af eigin raun að Barbados er mjög notalegur staður. Ég borgaði hins vegar farið þangað sjálfur, já bæði flug og hótel.