
Það má ekki gerast að lögregla komist ekki í útköll vegna manneklu.
Og þótt fjölgað sé í efnahagsbrotadeild má það ekki koma niður á almennri löggæslu eða öryggi borgaranna.
En menn sem þekkja til í lögreglunni segja mér að þetta sé ekki einungis spurning um fjársvelti.
Að óvíða séu jafn margir yfirmenn í lögregluliði og hér. Meðan almennum lögreglumönnum fjölgar ekki.
Ástæðan er ekki síst launastefna ríkisins. Það má ekki hækka launin yfir línuna, þannig að mönnum er umbunað með því að setja þá í yfirmannsstöður.