
Svafa Grönfeldt er í stýrihópi sem á að semja sóknaráætlun fyrir Ísland.
Þetta er auðvitað hið besta mál.
En kannski hefði verið hægt að nota gömlu skýrsluna hennar Svöfu.
Þessa sem fjallaði um hvað Íslendingar væru frábærir, var skilað fáum dögum fyrir hrun – og mærði íslenskt atvinnulíf fyrir kraft og áhættusækni.
Nefndarmenn gætu kannski notað gömlu skýrsluna til að lemja sig í hausinn til að athuga hvort þeir sjái ljós.