

Á heimili mínu eru Crocs kallaðir „skór eins og allir eru í“.
Þannig er mál með vexti að fyrir tveimur árum gaf amma Kára honum svona skó.
Mér varð á að segja að ég hefði aldrei séð ljótari skófatnað.
Þá sagði amman:
„En það eru allir í svona skóm!“
Ég tek fram að hún myndi aldrei fara í svona skó sjálf.
Eftir nokkurn ágreining klæddist Kári svona skóm í sumarfríinu í fyrra og aftur núna í ár. Þetta er óneitanlega hentugur fótabúnaður, til dæmis á ströndinni.
Við höfum þó dregið mörkin við að að hann fer helst ekki í bæinn í Crocs skónum.
Margir telja að Crocs séu mesta tískuslys síðari ára. Þessir skór eru sjálfsagt mjög þægilegir, en þeir eru líka svakalega ljótir.
Verst er þó ef einhver verður uppvís af því að vera í sokkum innan undir Crocs-skóm. Það er hryllilegt.
Nú er skrifað í erlendum blöðum að tími Crocs sé að líða. En það er ekki bara vegna þess að skórnir séu dottnir úr tísku, eða vegna ills umtals, heldur líka vegna þess að þessi nútímalega útgáfa af gömlu gúmmískónum hefur reynst vera óslítanleg.
Ánægðir Crocs eigendur þurfa því mjög sjaldan að endurnýja skóbúnað sinn.
Og fyrirtækið sem framleiðir skóna er í vandræðum.