
Því er slengt fram sem vandamáli að íbúar veraldarinnar séu að verða eldri.
En Zoe Williams hjá Guardian hefur rétt fyrir sér. Það eru bara þröngsýnustu hagfræðingar sem hugsa svona.
Þetta er gleðiefni.
Við verðum eldri og hraustari, lífshorfurnar eru betri og fólk þarf ekki að hrúga niður börnum af því það er eina tryggingin gegn örbirgð í ellinni.