
Þetta er glúrinn pistill hjá Árna Snævarr. Hann hefur engu gleymt sem stjórnmálaskýrandi.
Árni telur að Bjarni Ben og Illugi séu býsna klókir og tefli sína refskák.
Og séu búnir að fá menn eins og Styrmi, Davíð, Árna Johnsen og Pétur Blöndal til að berjast, ekki gegn ESB aðild, heldur fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB viðræður.
Þannig séu þeir í raun búnir að kyngja aðildarviðræðum.