fbpx
Þriðjudagur 03.mars 2026
Eyjan

Ekki kratabandalag

Egill Helgason
Miðvikudaginn 15. júlí 2009 13:21

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mikið er talað um að ESB sé einhvers konar kratabatterí, þetta er ein af ranghugmyndunum sem flýgur nú í umræðunni. Stundum mætti jafnvel álíta að ESB sé einhvers konar samsæri sem runnið er undir rifjum Samfylkingarinnar.

Staðreyndin er þó sú að hægri- og miðflokkar í Evrópu eru upp til hópa mjög Evrópusinnaðir, enda komu stofnendur Evrópusambandsins flestir af hægri væng stjórnmálanna.

Nokkrir feður Evrópusambandsins eru taldir vera Jean Monnet og Robert Schumann, Konrad Adenauer, Charles de Gaulle og Alcide de Gasperi

Monnet var franskur embættismaður sem vann mikil afrek við uppbyggingu Evrópu eftir stríðið, Schumann var kristilegur demókrati, rétt eins og Adenauer, De Gaulle var leiðtogi hægrimanna í frönskum stjórnmálum, Gasperi var stofnandi Kristilega demókrataflokksins á Ítalíu.

Bretar gengu inn í ESB á valdatíma íhaldsmannsins Edwards Heath. Danmörk sem lengst hefur verið Norðurlandanna innan ESB hefur verið undir stjórn hægrimanna í næstum áratug – nú eru hægrimenn líka við völd í Svíþjóð, Frakklandi, Þýskalandi og á Ítalíu.

Vinstrið er víðast hvar í vandræðum.

Á Evrópuþinginu er langstærsti hópurinn bandalag hægri- og miðflokka, svokallaður European People´s Party.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Guðfinna skrifar: Sáttamiðlun í fasteignamálum

Guðfinna skrifar: Sáttamiðlun í fasteignamálum
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum
Landráðamenn
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Báknið kjurt

Björn Jón skrifar: Báknið kjurt
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið