
Hingað hafa frá tíma hrunsins streymt erlendir blaðamenn. Þeir hafa sumir búist við að sjá neyð, en verða fyrir vonbrigðum þegar þeir finna hana ekki. Maður reynir að skýra út fyrir þeim að þeir sem eigi í mestum vanda séu þeir sem eru sokknir í skuldafen. Þetta er gjarnan fólk sem spennti bogann mjög hátt, keypti sér stór hús og flotta bíla, en á nú í hrikalegu basli.
Þeir sem minna hafa á milli handanna náðu ekki að skuldsetja sig eins mikið og því er fallið ekki svo hátt hjá þeim.
Lilja Mósesdóttir kemur inn á þetta í frétt á Vísi.is.
„Síðan er það bara þessi hópur sem er svo skuldsettur, að hann hefur ekki misst vinnuna en er að borga það mikið í hverjum mánuði af skuldunum að það á ekki fyrir mat allan mánuðinn,“ segir Lilja. Hún bendir á að þetta fólk búi oft í góðu húsnæði og sé á góðum bílum en geti ekki losað sig við þessar eignir til að minnka skuldabyrðina. „Þetta er fólk sem kemur kannski og biður um félagslega aðstoð og er svo á Range Rover og býr í einhverju einbýlishúsi,“ segir Lilja og bendir á að fólk geti ekki bjargað sér vegna þess að það er algert frost á bílamarkaði og húsnæðismarkaði.“