
Að einhverju leyti mun rannsóknarnefndin sem starfar á vegum Alþingis fjalla um einkavæðingu bankanna – eða það hlýtur að vera.
En það er ekki nóg.
Nú er tækifæri fyrir þingmenn, til dæmis úr Borgarahreyfingu, að leggja til að sett verði á laggirnar þingnefnd til að fjalla sérstaklega um einkavæðinguna.
Sú nefnd ætti að hafa opna fundi og yfirheyrslur.
Fyrir nefndina yrðu kallaðir arkitektar einkavæðingarinnar, Davíð Oddsson, Halldór Ásgrímsson, Kjartan Gunnarsson, Baldur Guðlaugsson, Finnur Ingólfsson, Valgerður Sverrisdóttir, Geir Haarde, Hreinn Loftsson – og einnig Steingrímur Ari Arason sem sagði sig úr einkavæðingarnefnd með þeim orðum að hann hefði aldrei séð önnur eins vinnubrögð.
Jú og líka Björgólfur Guðmundsson, Björgólfur Thor Björgólfsson, Ólafur Ólafsson og Sigurður Einarsson.
Þessar yfirheyrslur ætti að senda út í beinni útsendingu í sjónvarpi.
Í einkavæðingunni liggur upphafið að því sem síðar gekk yfir Ísland. Þar var verðmætum eignum almennings stýrt í hendurnar á fámennum klíkum vildarvina stjórnarflokkanna.
Þeir voru ekki einu sinni borgunarmenn fyrir þessu, heldur fengu lánað í bönkunum sem verið var að einkavæða á þessum tíma.
Blekkingin var algjör og það var logið að þjóðinni.
Og reyndar er spurning hvort ekki þurfi líka að kanna hvort hægt sé að koma lögum yfir þá sem stóðu fyrir þessu svikabralli.