fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Eyjan

Bréf um embættismenn, Evu Joly, Haga og snjallar tillögur sjálfstæðismanna

Egill Helgason
Sunnudaginn 14. júní 2009 09:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Örstutt hugleiðing um stöðu íslenska embættismannakerfisins og siðferðisvanda okkar þjóðar

Við höfum nú þrjú augljós dæmi um okkar æðstu embættismenn sem hafa hangið eins og hundur á roði í stöður sínar í krafti laga og reglna. Talað er um lög um opinbera starfsmenn eða lög um Seðlabankann eða ríkissaksóknara. Hér er ég augljóslega með í huga Davíð Oddsson, Baldur Guðlaugsson og Valtý Sigurðsson (listinn gæti augljóslega verið lengri). Þetta hefur leitt til þess að lögum hefur verið breytt (Seðlabankalög) eða umræða hefur farið af stað um það að breyta lögum um opinbera starfsmenn eða lögum um ríkissaksóknara. Ég held að við séum í kominn í blindgötu í lagasetningu um réttindi þessara einstöku mannna og nú þurfi að fara af stað umræða um skyldur æðstu embættismanna. Hér er ég ekki að tala um lög heldur siðferði.

Það gildir það sama um æðstu embættismenn og stjórnmálamenn, ef að þeir njóta ekki lengur traust þings og þjóðar þá verða þeir að virða það. Þetta er augljóst, við þurfum ekki lög um þetta, við þurfum siðferði. Auðvitað getum við sýnt þeim sóma í starfslokum sínum en þeir verða þá líka að sýna örlitla sómatilfinningu og átta sig á að embætti þeirra eru stærri og viðameiri en þeirra persónur. Þeim var falin mikil ábyrgð þegar þeir tóku að sér þessi embætti, þeir þurfa að sýna okkur að að þeir hafi verið verðir þeirrar ábyrgðar, þetta kemur lögum ekkert við.

Íslenskt samfélag endurspeglast þarna og kannski af hverju við erum þar sem við erum. Hvernig á almenningur að sýna ábyrgð meðan okkar æðstu embættismenn sýna ekki þann snefil af ábyrgð sem þeim ber. Með búsáhaldabyltingunni voru pólítíkusar neyddir til að axla ábyrgð (að sjálfsögðu ekki sjálfviljugir). Embættismenn sem augljóslega þurfa að víkja hafa augljóslega ekkert lært af því. Okkar helstu jöfrar á sviði „viðskipta“ hafa enn síður lært. Getur verið að siðferðilegur vandi okkar sé djúpstæðari og alvarlegri en allar okkar skuldir og gjaldþrot? Ég tel svo vera. Ísland virðist hafa tekið að sér að vera spillta og óuppalda barnið í samfélagi þjóða. Við kennum öðrum um og lítum aldrei í eigin barm. Þetta gildir um þá einstaklinga sem efst trjóna á öllum stigum okkar samfélags og þetta gildir um samskipti okkar við aðrar þjóðir. Við erum lítil þjóð í miklum vanda.

— — —

Stórsnjallar tillögur Sjálfstæðisflokksins

Ég hef nú oft hnýtt í Sjálfstæðismenn enda hrunið þeim að kenna með einum eða öðrum hætti og nánast allir aðalleikararnir sjálfstæðismenn, hvort sem talað er um stjórnmálamennina, eftirlitsaðilana og fjárglæframennina.

Nýjar tillögur þeirra um að færa til skattlagningu lífeyris eru brilljant. Þá eru hugmyndir þeirra um að lækka tímabundið greiðslubyrði húsnæðislána um 50% mjög góðar og myndu létta undir með heimilunum og draga úr minnkun neyslu.

Ríkisstjórnin ætti að taka þessum tillögum fagnandi sem ásamt lækkun vaxta myndi senda rétt skilaboð inn á markaðinn.

— — —

Eva Joly, ekki láta hana fara

Ne la laisse pas partir!

Sinon c‘est la fin de tout espoir.

— — —

Hver á Haga?

Sæll Egill og þakka þér fyrir þitt einstaka framlag við að halda íslenskri
þjóð á lífi í vetur.
Ég er að velta fyrir mér hvort þú getur frætt okkur almúgann um eftirfarandi:
– Hvað er að frétta af „Högum“ í dag? Hverjir eiga „Haga“. Hvaða fyrirtæki
eru „Hagar“ að reka í dag? Hvernig er staða „Haga“?
– Er einhvers staðar til listi yfir fyrirtækin sem skilanefndirnar hafa
verið að selja? Hverjir hafa keypt þau? Getur þú verið með lista á
Eyjunni, uppfærðan t.d. einu sinni í mánuði um þessi fyrirtæki og
kaupendur? Þetta er ef til vill of umfangsmikið.
_ Hvað er Logos að gera í dag fyrir íslenska þjóð? Er hægt að gera þeirra
störf gegnsæ? Getur þú verið með fleiri fréttir af því á Eyjunni?
– Hvað er Jón Ásgeir að bralla fyrir Íslands hönd, þ.e. sem fulltrúi
Íslands á Englandi, þessa dagana? Í hverju er hlutverk hans fólgið?

Bestu kveðjur
Kona úr Kópavogi

— — —

Lögfræðingar í skrítnum málum

Hvað sagði Eva Joly?
Að margt benti til að eitthvað glæpsamlegt hafi farið fram í bönkunum!??
Getur einhver mótmælt því? Það er svo greinilegt að þar hefur ýmislegt glæpsamlegt farið fram hvort sem það er löglegt eður ei.

Hvað sagði Sigríður? Að svo virtist sem eftirlitsstofnanir og stjórnendur fjármálastofnana hafi brugðist!?
Íslenska ríkið er komið í hundruð ef ekki þúsund milljarða skuldir sem við hefðum ekki fengið í hausinn hefði þetta lið staðið sig!
Þetta vita allir og þýðir ekkert fyrir einhverja að reyna að telja almenningi trú um annað!

Spurning er aðallega hvernig þetta gat gerst og hverjir bera mesta ábyrgð.

En margir hér og víðar í þjóðfélaginu væla ógurlega ef fólk opnar munninn, það lið er eins og kínversk stjórnvöld eða aðrir ritskoðunarkónar.

Það er hrikalega ómerkilegt að reyna að nýta sér þessi almennu ummæli til að reyna að sverta þessar konur, hlýtur að vera til að verja vondan málstað.

Eitt er svo hvað lögfræðingar og endurskoðendur virðast koma illa út í umræðunni um hrunuð og sjást varla. Sá fyrsti sem tjáði sig einhverjum mánuðum eftir hrun röflaði um mannréttindabrot í sambandi við frystingu eigna auðmanna. Líklega þora menn ekkert að tjá sig um þá glæpi og klúður sem hér hafa verið af því að þessir þjóðflokkar hafa verið að synda í peningaflóðinu eða vonast eftir vænum feitum bitum úr uppgjörsvinnunni.

Ég hefði viljað sjá einhverja lögfræðinga sína dug og rita greinar í blöð um það hvernig lagaumhverfi hér var gallað og hvernig hegðun fjármálastofnana og manna braut gegn lögum! Fara að standa með mannréttindum almennings en ekki gæta hagsmuna þeirra sem skrifa feita (gúmmí)tékka!!

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Willum Þór Þórsson: Íþróttahreyfingin samofin sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar

Willum Þór Þórsson: Íþróttahreyfingin samofin sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Fylgi stjórnmálaflokka: Samfylkingin og Miðflokkurinn styrkjast – Sjálfstæðisflokkur og Framsókn áfram á niðurleið

Fylgi stjórnmálaflokka: Samfylkingin og Miðflokkurinn styrkjast – Sjálfstæðisflokkur og Framsókn áfram á niðurleið
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Thomas Möller skrifar: Gamlar fréttir og nýjar

Thomas Möller skrifar: Gamlar fréttir og nýjar
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum
Landráðamenn
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Jón Gnarr skrifar: Meitlað í stein

Jón Gnarr skrifar: Meitlað í stein
Eyjan
Fyrir 1 viku

Regína ætlar að hætta sem bæjarstjóri Mosfellsbæjar

Regína ætlar að hætta sem bæjarstjóri Mosfellsbæjar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Sigmundur Davíð borgarstjóraefni? – Miðflokkur á flugi og átök um lista Sjálfstæðisflokksins

Orðið á götunni: Sigmundur Davíð borgarstjóraefni? – Miðflokkur á flugi og átök um lista Sjálfstæðisflokksins