fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Eyjan

Z

Egill Helgason
Laugardaginn 13. júní 2009 14:18

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

200px-costagavrasz.jpg

Ég horfði í gær á fræga kvikmynd sem heitir Z.

Hún er eftir grísk/franska leikstjórann Costa-Gavras og fjallar um þegar frægur stjórnmálamaður, læknir, íþróttagarpur, vinstrisinni og friðflytjandi, Gregoris Lambrakis, var myrtur af hægri öfgamönnum í Thessaloniki árið 1963.

Þetta er einn frægasti atburður í grískum stjórnmálum. Lambrakis var sannkallaður landaljómi sem naut vinsælda, virðingar og aðdáunar; ólgan sem ríkti í pólitíkinni á þessum árum endaði loks í valdatöku herforingjanna. Þeir tóku ýmsa félaga Lambrakis, myrtu þá, pyntuðu eða sendu í útlegð.

Það vakti athygli mína hvernig öfgamennirnir í myndinni, sumir úr hernum og lögreglunni, aðrir úr alþýðustétt, töluðu um stjórnmálamenn.

Viðkvæðið var að það væri sami rassinn undir þeim öllum. Þeir hugsuðu aldrei um neitt nema sjálfa sig. Lýðræðið væri einskis virði vegna þessa.

Menn ættu að passa sig hvað þeir biðja um. Stjórnmálamenn geta verið lélegir, en kerfið sem við búum við er þess virði að við berjumst fyrir það.

Og ef við höldum áfram að endurtaka þetta í sífellu, þá er hættan að við opnum leiðina fyrir öfgamenn og lýðskrumara.

Gáum að því.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Willum Þór Þórsson: Íþróttahreyfingin samofin sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar

Willum Þór Þórsson: Íþróttahreyfingin samofin sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Fylgi stjórnmálaflokka: Samfylkingin og Miðflokkurinn styrkjast – Sjálfstæðisflokkur og Framsókn áfram á niðurleið

Fylgi stjórnmálaflokka: Samfylkingin og Miðflokkurinn styrkjast – Sjálfstæðisflokkur og Framsókn áfram á niðurleið
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Thomas Möller skrifar: Gamlar fréttir og nýjar

Thomas Möller skrifar: Gamlar fréttir og nýjar
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum
Landráðamenn
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Jón Gnarr skrifar: Meitlað í stein

Jón Gnarr skrifar: Meitlað í stein
Eyjan
Fyrir 1 viku

Regína ætlar að hætta sem bæjarstjóri Mosfellsbæjar

Regína ætlar að hætta sem bæjarstjóri Mosfellsbæjar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Sigmundur Davíð borgarstjóraefni? – Miðflokkur á flugi og átök um lista Sjálfstæðisflokksins

Orðið á götunni: Sigmundur Davíð borgarstjóraefni? – Miðflokkur á flugi og átök um lista Sjálfstæðisflokksins