
Sigrún Davíðsdóttir hefur lagst í gögn um yfirtöku Kaupþings í Bretlandi og kemst að þeirri niðurstöðum að sama dag og Kaupþing fékk 80 milljarða króna lán í Seðlabankanum á Íslandi hafi fjármálaeftirlitið breska óttast svo um stöðu bankans að það fyrirskipaði að innlán í hann yrðu lögð inn á sérstakan reikning – þannig var í raun búið að taka ráðin af Singer & Friedlander, dótturfélagi bankans.
Á sama tíma kom Sigurður Einarsson í sjónvarp á Íslandi og sagði að staða bankans væri sterk.
Og fyrst við erum að tala um Kaupþing, þá sendi hollvinur síðunnar þetta bréf um eitt svindlmálið sem er við það að gleymast:
„Stjórn gamla Kaupþings felldi niður 50milljarða skuld nokkurra
starfsmanna bankans í lok september rétt fyrir hrun. Það komst upp
nokkrum vikum síðar og þá varð almenningur brjálaður. Þá sagði
skatturinn: þessa niðurfellingu þarf að færa til tekna á skattframtali
og borga tekjuskatt ca 18 milljarða. Þá sögðust starfsmennirnar ætla
að „endurgreiða“ lánin. Síðan gleymdist þetta mál. Lögfræðiliðið úr
gamla bankanum var auðvitað flutt beint í nýja bankann og á nýju ári
fengu þessir starfsmenn það „lögfræðilega“ álit frá bankanum sínum að
þeir þyrftu ekkert að hafa áhyggjur af þessu, ekkert að vera að telja
þetta fram á skattframtalinu. Enginn gerði það.
Loka þarf auka 20 milljarða gati. Það er búið að gera ráðstafanir til
að ná inn 2-3 milljörðum með hækkun á bensíngaldi, bifreiðagjöldum og
álögum á tóbak og áfengi. Nú vantar bara 17-18 milljaraða og þeir
liggja allir í eignum sem þessir örfáu starfsmenn gamla Kaupþings eiga
skuldlausar í dag. Með því að fara þessa leið er einungis verið að
framfylgja skattalögum.„