fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Eyjan

Nennti Svavar ekki lengur?

Egill Helgason
Mánudaginn 8. júní 2009 20:10

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Elías Pétursson skrifar þennan pistil.

— — —

Sæll Egill,

Hér sit ég sorgmæddur og hlusta á stjórnmálamenn tala um ICESAVE, Steingrímur J. búinn að halda mikla þrumuræðu eins og honum er lagið. Allt er öðrum að kenna og hinir vondu flokkarnir þmt. núverandi samstarfsflokkur hans hafa klúðrað öllu en hann, nýi Steingrímur og Svavar stúdent hafi reddað því sem hægt var að redda. Svavar sá sagði reyndar í Morgunblaðinu um helgina þegar blaðamaður spurði hann „Hvers vegna var svona mikil áhersla lögð á það að ljúka þessu máli núna?

Ég var nú eiginlega bara orðinn leiður á því að hafa þetta hangandi yfir mér,“ segir Svavar og hlær. Hann segir að ekki hafi verið neinn þrýstingur á að ljúka málinu á þessum tímapunkti. „Eftir fundinn í Kaupmannahöfn [um miðjan apríl innsk.blm] vorum við eiginlega tilbúin með þessa lausn. Síðan tók langan tíma að útskýra þetta fyrir þeim [Bretum og Hollendingum].“

Þetta sagði stúdentinn Svavar Gestsson þegar blaðamaður spyr hann um ástæður þess að ekki var haldið áfram við samningaumleitanir (eins gott að hann er ekki dýralæknir), Svavar er jú fulltrúi Steingríms J Sigfússonar fjármálaráðherra.

Þess sama Steingríms og sagði í þinginu þann 5.12´08 kl 16:31, þar sem hann ræðir um riftanleika ákvörðunar fyrri ríkisstjórnar Samfylkingar og Sjálfstæðismanna.

Hvað heitir það á lagamáli þegar svoleiðis samningar eru gerðir þó að það sé ekki undir byssukjöftum beinlínis? Það eru nauðungargerningar. Það eru væntanlega riftanlegir, ógildanlegir nauðungargerningar sem gerðir eru við aðstæður af þessu tagi og er þekkt fyrirbæri, bæði í landsrétti og þjóðarétti, að samningar sem gerðir eru þar sem annar aðilinn er settur í slíkar aðstæður halda ekki eða þurfa ekki að standa vegna þess að það er ekki þannig sem siðað fólk semur, að annar aðilinn sé með byssu í hnakkanum eða eitthvað viðlíka í formi hótana um efnahagsþvinganir o.s.frv.”

Sá ræðufæri Steingrímur sem talaði í dag er augljóslega allt annar Steingrímur en talaði  fyrir örfáum mánuðum  digurbarkalega um þá aumu lítilssigldu stjórnmálamenn sem væru með hugmyndum um samningaumleitanir að leggja þvílíka klafa á þjóðina að ekki yrði með nokkrum hætti staðið undir. Einkennileg þessi sífeldu fataskipti stjórnmálamanna og varðhunda þeirra, nú er meira að segja Mörður Árna farinn að verja þennan ömurlega gjörning stjórnmálanna.

Nýi Steingrímur sagði víst ef marka má formann Framsóknar í þinginu fyrir helgi að ekkert væri í gangi í ICECAVE-málinu sem máli skiptir, menn væru kannski að hittast eitthvað smá en enginn samningur  væri í pípunum.

Hann hefur sennilega ekki vitað af því að Svavar var hættur að „nenna“ þessu samningarugli.

Meira síðar…..

Elías Pétursson

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Willum Þór Þórsson: Íþróttahreyfingin samofin sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar

Willum Þór Þórsson: Íþróttahreyfingin samofin sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Fylgi stjórnmálaflokka: Samfylkingin og Miðflokkurinn styrkjast – Sjálfstæðisflokkur og Framsókn áfram á niðurleið

Fylgi stjórnmálaflokka: Samfylkingin og Miðflokkurinn styrkjast – Sjálfstæðisflokkur og Framsókn áfram á niðurleið
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Thomas Möller skrifar: Gamlar fréttir og nýjar

Thomas Möller skrifar: Gamlar fréttir og nýjar
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum
Landráðamenn
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Jón Gnarr skrifar: Meitlað í stein

Jón Gnarr skrifar: Meitlað í stein
Eyjan
Fyrir 1 viku

Regína ætlar að hætta sem bæjarstjóri Mosfellsbæjar

Regína ætlar að hætta sem bæjarstjóri Mosfellsbæjar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Sigmundur Davíð borgarstjóraefni? – Miðflokkur á flugi og átök um lista Sjálfstæðisflokksins

Orðið á götunni: Sigmundur Davíð borgarstjóraefni? – Miðflokkur á flugi og átök um lista Sjálfstæðisflokksins