
Samfylkingin vill inn í Evrópu.
En sósíaldemókratar biðu afhroð í Evrópukosningunum í gær
Nema í Grikklandi, þar sem Pasok, flokkur sem nú er stjórnað af Papandreou hinum þriðja, vann góðan sigur – þrátt fyrir að sjórnarflokkurinn, Nea Demokratia, hafi veggfóðrað borgir og sveitir með kosningaplakötum. Papandreou gæti orðið forsætisráðherra innan tíðar, líkt og faðir hans og afi.
Hægri- og miðjumenn ráða ferðinni á Evrópuþinginu. Hópur EPP er þar langstærstur – þetta myndu sirkabát vera þeir sem Sjálfstæðisflokkurinn á samleið með í pólitík.