fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Eyjan

Ekki vinstri sveifla þrátt fyrir kreppu fjármagnsins

Egill Helgason
Mánudaginn 8. júní 2009 06:40

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á Íslandi er vinsti stjórn sem komst til valda eftir óeirðir og kosningar, á yfirborðinu vinstri sinnaðasta ríkisstjórn í sögu lýðveldisins, en kannski verður hún það alls ekki – margt bendir til að flestir leikir hennar séu þvingaðir.

Að hún bregðist ekki öðruvísi við en stjórn sem væri lengra til hægri.

Vinnubrögðin í Icesave benda allavega til þess að hún ætli ekki að taka upp „sósíalisma í einu landi“.

Í Evrópu er langt í frá vinstri sveifla þrátt fyrir erfitt efnahagsástand, kreppu fjármagnsins. Mið- og hægriflokkar vinna á í Evrópukosningum, hægri sinnaðir valdaflokkar halda velli eða bæta við sig fylgi. Sarkozy í Frakklandi styrkir til dæmis mjög stöðu sína.

Um leið er áhyggjusamlegt hversu pópúlistaflokkum til hægri vex ásmegin eins og breska þjóðernisflokknum og flokki Geert Wilders í Hollandi. Og í Finnlandi, þar sem ég er staddur, fékk flokkur sem nefnist Sannir Finnar 10 prósenta fylgi. BNP í Bretlandi eru bullur og fantar, meðan UKIP sem vann mikinn sigur eru frekar pópúlistar – svona í anda gamla Glistrups sagði ágætur Englendingur við mig um daginn.

Gordon Brown fékk á baukinn, og það sýtir varla neinn Íslendingur. Hann virðist samt ætla að lafa. Það styttist þó þangað til Cameron og Íhaldið taka við völdum. Við ættum kannski að fara að vingast við Íhaldsflokkinn sem væntanlega verður við stjórnvölinn næstu tíu árin.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Willum Þór Þórsson: Íþróttahreyfingin samofin sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar

Willum Þór Þórsson: Íþróttahreyfingin samofin sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Fylgi stjórnmálaflokka: Samfylkingin og Miðflokkurinn styrkjast – Sjálfstæðisflokkur og Framsókn áfram á niðurleið

Fylgi stjórnmálaflokka: Samfylkingin og Miðflokkurinn styrkjast – Sjálfstæðisflokkur og Framsókn áfram á niðurleið
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Thomas Möller skrifar: Gamlar fréttir og nýjar

Thomas Möller skrifar: Gamlar fréttir og nýjar
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum
Landráðamenn
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Jón Gnarr skrifar: Meitlað í stein

Jón Gnarr skrifar: Meitlað í stein
Eyjan
Fyrir 1 viku

Regína ætlar að hætta sem bæjarstjóri Mosfellsbæjar

Regína ætlar að hætta sem bæjarstjóri Mosfellsbæjar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Sigmundur Davíð borgarstjóraefni? – Miðflokkur á flugi og átök um lista Sjálfstæðisflokksins

Orðið á götunni: Sigmundur Davíð borgarstjóraefni? – Miðflokkur á flugi og átök um lista Sjálfstæðisflokksins