
Fyrir tveimur árum fóru Kári og mamma hans í bíó í London. Þau urðu vör við að rotta skaust yfir salinn skömmu áður en myndin hófst.
Í kvöld fór ég í bíó utandyra hér á Krít. Myndin var á hebresku með grískum texta. Þegar myndin var nýbyrjuð hljóp rotta yfir sviðið fyrir framan tjaldið.
Ég veit ekki hvort aðrir urðu varir við það en ég.
Ég hafði samband við Kára til að segja honum tíðindin.
Hann spurði:
„Ætli þetta sé sama rottan?“