
Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, segist ekki ganga erinda sérhagsmuna. Hann um það.
Vandinn við kvótakerfið er ekki bara að aðferðin við úthlutunina var óréttlát, að búið er að færa hann í bækur sem eign þótt lögin segi að hann sé sameign þjóðarinnar, að búið er að veðsetja fiskinn í sjónum mörg ár fram í tímann í mjög vafasömum viðskiptum, á idjótísku verði – og meira að segja selja áfram til erlendra banka.
Heldur líka að þetta er nokkurs konar lénskerfi, þar sem fámennum aðli hafa verið afhent gæði sem hann leigir út frá sér og hirðir rentuna. Í skjóli þessa leigukerfis hefur tíðkast mikið brask – en í raun eru lénsherrarnir algjörlega óþarfur milliliður í því.
Maggi B. skrifar um þetta á blogginu sínu.