
Það er nokkur ró á hinu pólitíska sviði.
Búið að skipta um ríkisstjórn.
Ætli megi ekki gera ráð fyrir að stór hluti þeirra sem tók þátt í búsáhaldsabyltingunni séu hallir undir hana?
Að hún þurfi að gera stór axarsköft til að það mæti aftur út á göturnar með potta sína og sleifar?
En þá gæti önnur bylting verið í sjónmáli. Bylting millistéttarinnar, þá frekar hinnar efri en hinnar neðri.
Sem myndi þá mæta og hrista skartgripi sína.