
Sigrún Davíðsdóttir flutti pistil í Speglinum um mannaráðningar í eignaumsýslufélögum nýju bankanna. Þar má sjá gamalkunnug andlit frá tíma útrásarinnar.
Pistillinn endar á svofelldum orðum:
— — —
„Ríkisbankarnir þrír eiga eftir að véla með óhemju verðmæti sem verða seld með tímanum. Enginn efi er á að bankarnir halda á lofti að það verði gert á gagnsæjan hátt. Þetta er ekki spurning um andlit og ábyrgð heldur um að eyða tortryggni, ýta undir nýjan þankagang og skapa þá tilfinningu að verið sé að ná í aðra menn en þá sem eru tengdir rekstri og eigendum gömlu bankanna. Það er ekkert rangt við þessar stöðuveitingar – en menn geta spurt sig hvort forráðamenn ríkisbankanna stefni á ekki örugglega á nýjar brautir með nýjum kröftum. Eins og er virðast margir kvíða því að verið sé að búa til skjól fyrir fyrri eigendur og ráðamenn í viðskiptalífinu sem var.“