
Hluthafafundur hjá Exista er auglýstur í Morgunblaðinu í dag, hjá bíóauglýsingunum, á blaðsíðu 34.
Fundurinn verður haldinn þriðjudaginn 26. maí, eftir rétta viku, í höfuðstöðvum félagsins í Ármúla, klukkan 10.
Í auglýsingunni segir að tillögur frá hluthöfum sem bera eigi upp á hluthafafundi skuli vera „komnar í hendur stjórnarinnar eigi síðar en sjö dögum fyrir fundinn“.
Það er í dag.
Sama dag og auglýsingin birtist.