
Við Lára Hanna komumst að því að við hefðum bæði verið hjá sama kennaranum, Jens Hallgrímssyni í Vesturbæjarskóla.
Hann var þá í húsi gamla Stýrimannaskólans við Öldugötu, var oft kallaður Öldugötuskóli.
Við spjölluðum saman í blíðunni á Austurvelli og vorum sammála um að Jens hefði verið besti kennari í heimi. Hann kenndi í Vesturbæjarskóla í fjörutíu ár. Lét af störfum fyrir nokkrum árum. Ég hef áður skrifað um hann hérna.
Þessi mynd var tekin af honum í fögnuði þegar bekkur Láru Hönnu kom saman 1997.