
Madeleine Bunting skrifar í Guardian og segir okkur hafa verið að lifa skeið sem hún kallar The Age of Entitlement. Það hafi einkennt bæði viðskiptalíf og stjórnmál, tíma þeirra sem voru nógu klárir, heppnir eða ósvífnir til að sveigja fram hjá reglunum. Nú segir hún að þessi tími sé eins og rotnandi hræ.
„This has been the Age of Entitlement in which those lucky or ingenious enough to find a way round the rules have richly rewarded themselves while the rest of us looked on, powerless and humiliated.„