
Jóhanna okkar var björt yfirlitum, heilbrigð og falleg að sjá í gær.
Og hún þurfti ekki að hrista sig og skaka eins og t.d. keppendur frá Rúmeníu, Tyrklandi og Úkraínu – síðastnefnda atriðið sló langt út klámið.
Guardian notaði orðin wholesome niceness um hana.
Þar var líka verið að setja út á bláa kjólinn hennar. Að hann væri tuskulegur eða eitthvað.
Nú ætla ég að hafa skoðun á því máli:
Mér fannst kjóllinn fallegur!
Og hann var efnismikill, ólíkt flestum öðrum kjólum í keppninni.
Svo má auðvitað geta þess að Jóhanna er ljóshærð í alvörunni – það er líka ólíkt hinum fjölmörgu óvæntu ljóskum frá Suður-Evrópu.